top of page
cityscape-view-in-rome-during-the-daytime-2026-09-23-01-16-45-utc.jpg

Aðventan byrjar í Róm

1. - 6. desember 2026

  Takmarkaður sætafjöldi. 

Flug & hótel í Róm sex dagar
frá 179.000 á mann 

Screenshot 2026-06-01 at 10.37.40.png
Screenshot 2025-06-29 at 17.29.41.png
the-pantheon-temple-in-rome-with-a-historical-foun-2025-02-02-11-45-43-utc.jpg

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:00. Í boði er að láta skutla sér beint á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Róm, ekki langt frá Vatíkaninu, þar sem við munum dvela næstu fjárar nætur.  Kostnaður við það á hvern farþega er 20 Evrur á mann.

​

Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og  í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.

​​​​

 

.

Dagur 2.

Skoðunarferð um helstu kennileiti og söguslóðir Rómar

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar.  Fyrir þá sem áhuga hafa þá munum  leggja af stað frá hótelinu kl. 09:00 í 6-7 manna bílum sem munu flytja okkur þangað sem gönguferðin okkar hefst. 

​

Göngutúrinn mun enda á Piazza Navona um klukkan 13:00 og í ​​​framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

​

Greitt er sérstaklega fyrir skoðunarferðina um Róm sem kostar 75 Evrur á mann.

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg
spanish steps II.jpg
capitolium-hill-piazza-del-campidoglio-in-rome-i-2024-12-10-00-33-36-utc.JPG
aerial-view-of-st-peter-s-basilica-2024-04-30-15-53-00-utc.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg

Dagur 3.

Péturskirkjan í Róm & Rómverskur hádegisverður í nágrenni vatíkansins.

Eftir morgunverð geta þeir sem áhuga hafa á því haldið með okkur til Péturskirkjunnar í Róm. Þau sem vilja fremur heimsækja Vatíkansafnið munu getað nýtt tímann í það, en ráðlagt er að bóka skoðunarferð í safnið með góðum fyrirvara.​

​

Péturskirkjan geymir ógrynni safngripa og menningarverðamæta, en einnig getur fólk farið upp í hvelfingu Péturskirkjunnar og notið útsýnissins þaðan yfir Róm, eða farið í hvelfingarnar fyrir neðan.

​

Hópurinn mun svo sameinast á veitingastað í nágrenni Vatíkansins, um klukkan 13:30, og borða saman síðbúinn hádegisverð.

​

Greitt er fyrir gönguferð og hádegismatinn sér, en verðið er 85 Evrur á mann.

 

Eftir hádegisverðinn er frjáls tími, sem fólk getur nýtt eins og best hentar. 

Dagur 4.

Frjáls dagur í Róm

Fátt er yndislegra en að rölta um götur Rómar í rólegheitum. Borgin býður upp á einstaka blöndu af sögu, menningu og notalegu andrúmslofti.  Hvort sem að ferðalöngum henti að rölta stefnulaust um götur miðborgarinnar, fara á söfn eða einfaldlega sitja á einhverjum skemmtilegum stað á fallegu torgi og njóta mannlífsins er þessi borg ómótstæðleg. 

​

Verðlagið er almennt mjög hagstætt og yfirleitt hægt að gera mjög góð kaup ef fólk vill versla. 

 

Róm er full af fallegum byggingum, líflegum torgum og notalegum veitingastöðum þar sem auðvelt er að slaka á og upplifa hinn einstaka rómverska lífsstíl á eigin skinni. 

rome-italy-cityscape-overlooking-trevi-fountain-2026-03-24-11-40-25-utc.jpg
fabulous-cityscape-of-venice-with-narrow-streets-a-2026-03-17-20-08-21-utc.jpg

Dagur 5.

Screenshot 2025-06-29 at 18.55.15.png
Screenshot 2025-06-29 at 18.57.18.png

Gönguferð um gyðingahverfið, áleiðis til Trastevere

Eftir morgunverð, er frjáls tími.  Um kl. 16:00 munu Þau sem vilja getað hitt fararstjóra á fyrirfram ákveðnum stað á Campo di Fiori torginu og þaðan munum við ganga um hverfið, kynna okkur merka sögu þess, ásamt því að fræðast um þau áhrif sem matarhefðir íbúa höfðu á matarmenningu Rómar, sem og Ítalíu. 

 

Markaðurinn á Campo di Fiori verður í fullum gangi og við munum við stoppa aðeins og smakka á kræsingum ​​​​og upplifa með eigin bragðlaukum sumt af þeim ljúffenga mat sem einkennir þetta hverfi, og hefur ekki síður haft áhrif á matarmenningu Rómar sem og Ítalíu. 

 

VIð höldum svo yfir Tíber fljótið til Trastevere hverfisins, sem er alveg einstakt, með þröngum götum og fjölbreyttri flóru verslana og veitingastaða. 

​

Göngunni mun ljúka á torgi heilagrar Maríu í Trastevere um klukkan 17:30 og eftir það er frjáls tími til að upplifa Trastevere og Róm eins og menn kjósa helst. 

​

Greitt er fyrir leiðsögnina í gegnum gyðingahverfið ásamt matarsmakki sér, en verðið fyrir það er 80 Evrur á mann. 

Screenshot 2025-06-29 at 19.00.33.png

Dagur 6.

Heimferð

Ferðadagur. Eftir snemmbúinn morgunverð er ráðlegt að leggja af stað til flugvallarins Fiumicino, um kl. 8:00. Í boði er að panta bíl þangað beint, og kostnaður við það er 20 Evrur á mann. 

​

Brottför heim er áætluð kl. 11:30.

rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð fyrir flug og hótel er 179 þúsund krónur á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 45.000 þúsund krónur við verð ferðar. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku, 10 kg. handfarangri og litlum bakpoka. Morgunverður alla daga. 5 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli miðsvæðis í Róm, skammt frá Vatíkaninu. Hótelið er með spa aðstöðu. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hótelum, og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Skráðu þig á forgangslista fyrir ferðina hér!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

Initalia

bottom of page