top of page

Napolí, Sorrento & Róm

24. - 29. október 2025

 Takmarkaður sætafjöldi 

Ferðin er skipulögð í samstarfi við ferðaskrifstofuna 500 Viaggi s.r.l. 

24.10-29.10 Napoli & Róm.jpg
500 viaggio.jpg
Screenshot 2024-10-12 at 15.34.41.png

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:00 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:25.

Við höldum saman til rútunnar sem mun flytja okkur á hótelið okkar í útjaðri Napolí. Ferðin þangað mun taka um tvo og hálfan tíma..

Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og munu í framhaldi getað slakað á í fallegu umhverfi hótelsins.

​Við hittumst svo í sameiginlegum kvöldverði á hótelinu, eftir að hafa komið okkur fyrir, til að kynnast og fara yfir næstu daga.

 

Kvöldverður ásamt víni og vatni er innifalið þetta kvöld.

Dagur 2.

Pompeii, pasta og Sorrento

Eftir morgunverð höldum við til hinnar mögnuðu Pompeii, til að skoða furðulega vel varðveittar mynjar Rómaveldis, í borg sem fórst í gjóskugosi árið 79 f. Kr. Leiðsögumaður á vegum safnsins mun fylgja okkur um svæðið, með íslenskum túlki. 

Eftir gönguferð um Pompeii er ferðinni haldið til Gragnano, lítils fjallaþorps uppi í hlíðum Napolíflóa, sem kallaður er höfuðstaður hins þurrkaða pasta, en þar var sú aðferð fundin upp í byrjun 14. aldar. 

 

Við snæðum hádegismat á þessum sögufræga stað og að sjálfsögðu brögðum við á ljúffengum pastaréttum. Hádegismatur og léttir drykkir eru innifaldir. 


Eftir hádegismatinn höldum við svo til hinnar mögnuðu strandaborgar við Napolíflóann, Sorrento og njótum eftirmiðdagsins þar. 

Kvöldverður ásamt víni og vatni er innifalið þetta kvöld.

pompeii-italy-temple-of-jupiter-or-capitolium-or-2023-11-27-05-18-28-utc.jpg
aerial-drone-view-of-the-tyrrhenian-sea-coast-in-s-2023-11-27-05-33-10-utc (1).jpg
Napoli við flóann.jpg
IMG_1289.jpeg

Dagur 3.

Napoli

Eftir morgunverð höldum til hinnar mögnuðu Napolíborgar. Áætlaður komutími er um kl. 10:30.

Við förum úr rútunni í nágrenni við Piazza Plebiscito sem er mjög miðsvæðis þaðan verður haldið í skoðunarferð með farastjórum, þar sem helstu kennileyti verða heimsótt, og við kynnum okkur magnaða sögu borgarinnar.

Eftir gönguferðina munum við hafa frjálsan tíma í Napólí til 18:00​ en þá mun hópurinn svo hittast á fyrirfram ákveðnum stað og ganga þaðan saman að rútunni.

 

Við höldum svo heim á hótelið okkar og borðum þar saman kvöldmat.

Kvöldverður ásamt víni og vatni er innifalið þetta kvöld.

Dagur 4.

Cori, borg frá 700 f. Krist & vínsmökkun í nágrenninu

Eftir morgunverð, höldum við áleiðis til Rómar en á leiðinni verður gert stutt stopp í Cori sem er ævaforn borg, uppi á hæð í Lazio-héraðinu, um 50 km suðaustur af Róm. Hún á sér mjög langa sögu, sem nær aftur fyrir fornrómverskra tíma, og var upprunalega byggð af Latverjum (Latini), einum af frumbyggjaþjóðflokkum mið-Ítalíu. Cori var orðin vel þróuð borg allt frá sjöundu öld f. Krist.

 

Staðarleiðsögumaður ásamt fararstjórum (túlkað verður jafnóðum yfir á íslensku í hlustunartækin) munu leiða okkur í gegnum aldirnar og kynna okkur stórmerkilega sögu Cori í gegnum minjar, hof og byggingar.

Göngutúrinn mun taka tæpan klukkutíma og í framhaldi höldum við á vínekru í nágrenni,  þar sem við munum borða léttan hádegisverð og smakka á ljúffengum vínum frá einum helsta vínframleiðanda Lazio-héraðsins. 

Þaðan höldum við á hótelið okkar í Róm sem er rétt rúman klukkustundar akstur frá.  Eftir innritun á hótelið er frjáls tími. 

​Hádegisverður og vínsmökkun er innifalið

Cori temple.jpg
Marco Carpineti winery.jpg

Dagur 5.

Skoðunarferð um Róm

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg

Eftir morgunverð, verður boðið upp á skoðunarferð um Róm með fararstjórum, þar sem skoðuð verða mörg af helstu kennileitum borgarinnar eilífu og fræðst aðeins um magnaða sögu hennar. Skoðunarferðin mun enda á Piazza Navona um kl. 12:30.

Hópurinn mun svo sameinast á veitingastað í nágrenni Vatíkansins, um klukkan 14:00, og borða saman síðbúinn hádegisverð á rómverska vísu. 

Hádegisverður með vatni og víni er innfalið.

Eftir hádegisverðinn er frjáls tími.

Pantheon II.jpg
spanish steps II.jpg

Dagur 6.

Heimferð

Ferðadagur. Eftir snemmbúinn morgunverð munum við halda áleiðis til flugvallarins Fiumicino, um kl. 8:00

Brottför heim er áætluð kl. 11:30.

rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 289.000 þúsund krónur á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 50.000 þúsund krónur við verð ferðar. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður alla daga. 3 nætur á glæsilegu 4 stjörnu Sheraton hóteli, við Napolí. 2 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli miðsvæðis í Róm, skammt frá Vatíkaninu. Kvöldverðir (ásamt víni og vatni) er innifaldir þrjú kvöld í Napolí. Aðgangur að Pompeii ásamt leiðsögn um svæðið með reyndum staðarleiðsögumanni og íslenskumælandi túlk. Heimsókn til Gragnano, höfuðborg pastans á Ítalíu ásamt léttum hádegisverði. Heimsókn til Cori ásamt leiðsögn um söguslóðir borgarinnar með reyndum staðarleiðsögumanni og íslenskumælandi túlk. Heimsókn til virts vínframleiðanda í nágrenni Cori ásamt vínsmökkun og léttum hádegisverði. Skoðunarferð um helstu kennileyti og sögustaði Rómar með íslenskri leiðsögn. Ekta ítalskur hádegisverður með drykkjum, í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hótelum, og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast 5 vikum fyrir brottför. Athugið að sætaframboð í þessa ferð er takmarkað. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hér er hægt að skrá sig á forgangslista fyrir ferðina!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

InItalia Travel

bottom of page