top of page
view-of-ancient-center-of-rome-on-capitoline-hill-2024-10-18-07-48-06-utc.jpg

Aðventuferð InItalia
til Rómar

3. - 7. desember 2025

 Takmarkaður sætafjöldi 

Screenshot 2025-06-29 at 17.10.19.png
Screenshot 2025-06-29 at 17.29.41.png
the-pantheon-temple-in-rome-with-a-historical-foun-2025-02-02-11-45-43-utc.jpg

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:00. Við söfnumst saman á flugvellinum og höldum saman þangað sem að 6-7 manna bílar bíða eftir að taka okkur beint á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Róm, ekki langt frá Vatíkaninu, þar sem við munum dvela næstu fjárar nætur. 

Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og  í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.

 

.

Dagur 2.

Skoðunarferð um helstu kennileiti og söguslóðir Rómar

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar.  

Göngutúrinn mun enda á Piazza Navona um klukkan 13:00 og í framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

Gönguleiðsögn er innifalin .

spanish steps II.jpg
colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg
capitolium-hill-piazza-del-campidoglio-in-rome-i-2024-12-10-00-33-36-utc.JPG

Dagur 3.

Gönguferð um gyðingahverfið, áleiðis til Trastevere

Screenshot 2025-06-29 at 18.55.15.png

Eftir morgunverð, höldum við áleiðis til gyðingahverfisins í  Róm þar sem við munum ganga  aðeins um og kynna okkur merka sögu þessa hverfis og fræðast um þau áhrif sem matarhefðir íbúa þess höfðu á matarmenningu Rómar og Ítalíu. 

Við munum gera stutt stopp á leiðinni til að smakka og upplifa með eigin bragðlaukum suma þá rétta sem einkenna þetta hverfi, og Róm, og halda svo áleiðis yfir til Trastevere hverfisins sem er hinum megin Tíberfljótsins. 

Göngunni mun ljúka á torgi heilagrar Maríu í Trastevere um klukkan 12:30 og eftir það er frjáls tími til að upplifa borgina í rólegheitum. 

​Gönguleiðsögnin ásamt smakki í gyðingahverfinu er innifalið. 

Screenshot 2025-06-29 at 18.57.18.png
Screenshot 2025-06-29 at 19.00.33.png

Dagur 4.

Péturskirkjan í Róm & Rómverskur hádegisverður í nágrenni vatíkansins.

Eftir morgunverð höldum við saman til Péturskirkjunnar í Róm. Þau sem vilja fremur heimsækja Vatíkansafnið munu getað nýtt tímann í það, en ráðlagt er að bóka skoðunarferð í safnið með góðum fyrirvara.

Péturskirkjan geymir ógrynni safngripa og menningarverðamæta, en einnig getur fólk farið upp í hvelfingu Péturskirkjunnar og notið útsýnissins þaðan yfir Róm, eða farið í hvelfingarnar fyrir neðan.

Hópurinn mun svo sameinast á veitingastað í nágrenni Vatíkansins, um klukkan 14:00, og borða saman síðbúinn hádegisverð.

Hádegisverður og meðfylgjandi veigar eru innfaldar.

 

Eftir hádegisverðinn er frjáls tími, sem fólk getur nýtt eins og best hentar. 

aerial-view-of-st-peter-s-basilica-2024-04-30-15-53-00-utc.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg
rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Dagur 5.

Heimferð

Ferðadagur. Eftir snemmbúinn morgunverð munum við halda áleiðis til flugvallarins Fiumicino, um kl. 8:00

Brottför heim er áætluð kl. 11:30.

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 229.000 þúsund krónur á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 40.000 þúsund krónur við verð ferðar. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Allur akstur samkvæmt lýsingu. Morgunverður alla daga. 4 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli miðsvæðis í Róm, skammt frá Vatíkaninu. Hótelið er með spa aðstöðu. Skoðunarferð um helstu kennileyti og sögustaði Rómar með íslenskri leiðsögn. Skoðunarferð um gyðingahverfið og svo til Trastevere með íslenskri leiðsögn. Smakk á réttum í gyðingahverfinu. Heimsókn í Péturskirkjuna. Ekta ítalskur hádegisverður með drykkjum, í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hótelum, og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 55.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast 5 vikum fyrir brottför. Athugið að sætaframboð í þessa ferð er takmarkað. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hér er hægt að skrá sig á forgangslista fyrir ferðina!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

InItalia Travel

bottom of page