Menning & dekur í Marche, Umbria & Róm

8.- 14. ágúst 2024

  • Dagur 1

    Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:00 með áætlaða lendingu í Róm kl. 13:30.

    Fararstjórar munu hitta hópinn við komuhliðið og fylgja honum í rútuna sem bíður á flugvellinum. Þaðan verður haldið áfram á hótelið Borgo Lanciano og mun ferðin taka um 3 klst.

    Leiðin þangað er falleg og fjölbreytt og stutt stopp verður gert á leiðinni. Eftir komu á hótelið, munu gestir fá afhent sín herbergi og í framhaldi getað slakað á í fallegu umhverfi.

    Mjög góður veitingastaður er á hótelinu en það tekur aðeins nokkrar mínútur að keyra frá hótelinu til Castelraimondo, þar sem fjölda veitingastaða er að finna.

  • Dagur 2

    Eftir morgunverð verður dekurdagur á Spa svæði hótelsins í boði.

    Upp úr hádegi ökum við stutta leið til veitingastaðar, uppi í hæðum Sibillini þjóðgarðsins, þar sem við munum njóta hádegisverðar á ítalska vísu.

    Eftir hádegisverð, verður frjáls tími.

  • Dagur 3

    Lagt verður af stað eftir morgunverð til fríríkissins San Marino sem stendur uppi á tindi fjallsins Titano. Stutt skoðunarferð verður í boði um helstu kennileiti en frjáls tími mun gefast til að versla og snæða hádegisverð eins og hentar.

    Á heimleiðinni verður farið í vínsmökkun. Þar mun okkur gefast tækifæri til að bragða á nokkrum af helstu vínum Marche - héraðsins eins og hvítvíninu Verdicchio og rauðvíninu Rosso Conero.

  • Dagur 4

    Lagt verður af stað eftir morgunverð og haldið til Gubbio, sem er miðaldabær í Umbria, í hæðum fjallsins Ingino. Bærinn er rómaður fyrir einstaka byggingarlist, mikilvægar fornleifar og hina árlegu miðaldarhátíð La corsa dei ceri. Við munum fara upp á tind Ingino með kláfi og njóta einstaks útsýnis yfir fagrar sveitir Umbria. Í Gubbio verður boðið upp á ólívuolíusmökkun.

    Næsti áfangastaður er bærinn Assisi sem er einnig frægur fyrir að vera fæðingastaður heilags Fransis og heilagrar Klöru. Við munum fara í stutta skoðunarferð um bæinn sem og í Dómkirkju heilags Fransis. Kirkjan er í gotneskum stíl og á margan hátt einstök, verandi skreytt freskum eftir Giotto e Cimabue.

    Á leiðinni tilbaka á hótelið er möguleiki á því að stoppa í frægu outletti til að versla.

  • Dagur 5

    Lagt verður af stað eftir morgunverð og ferðinni heitið til einnar af fegurstu ströndum Adríahafsins við bæinn Sirolo. Deginum verður varið á ströndinni, sem er í rétt rúman

    klukkustunda akstur frá hótelinu. Mögulegt er að skipuleggja siglingu fyrir þá sem vilja.

    Eftir að komið er heim á hótel er hægt að borða á hótelinu eða fara á einn af skemmtilegu veitingastöðunum í þorpinu Castelraimondo, sem er skammt frá hótelinu.

  • Dagur 6

    Við vöknum snemma og eftir morgunmat kveðjum við Borgo Lanciano og höldum til Rómar. Áætlaður komutími er um kl. 11.00. Fyrir þá sem vilja er í boði að fara í skoðunarferð með fararstjórunum um mörg af þekktustu kennileitum borgarinnar eilífu. Göngutúrinn mun taka um 3 tíma, og í framhaldi er frjáls tími.

    Hópurinn mun sameinast í kvöldverð í nágrenni Vatíkansins í Prati – hverfinu.

    Rútan mun síðan aka okkur upp á hótelið sem er rétt utan við Róm.

  • Dagur 7

    Ferðadagur. Ef tími gefst til, eftir morgunverð, stefnum við á að koma við í strandarbænum Lido di Ostia, á leiðinni til flugvallarins.

    Ströndin er aðeins nokkrar mínútur frá Fiumicino-flugvelli.

    Brottför heim er áætluð kl. 15:55.

  • Innifalið í verði

    Verð ferðar er 289.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi.

    Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 42.000 þúsund krónur við.

    Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri.

    Rútuferðir skv. ferðalýsingu.

    Morgunverður alla daga.

    5 nætur Borgo Lanciano, 4 stjörnu Spa hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche.

    4 klst. á Spa svæði hótelsins og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins.

    Skoðunarferð til fríríkissins San Marino og vínsmökkun.

    Skoðunarferð til Assisi, fæðingarbæjar heilags Fransis, verndara Ítalíu.

    Skoðunarferð til Gubbio í Umbria og ólívuolíusmökkun.

    Strandarferð til Sirolo við Conero - ströndina.

    Rútuskutl (5 mín.) fram og tilbaka frá hóteli til Castelraimondo, fyrir þá sem vilja borða í bænum á degi 5.

    Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt kvöldverði í nágrenni við Vatíkanið.

    Gisting 1 nótt á 4 stjörnu hóteli skammt frá Róm.

    Skoðunarferð til Lido di Ostia

    Íslensk fararstjórn.

    Ekki innfalið:

    Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, aðgangur að Spa svæði hótelsins þá daga sem ferðir eru í boði, strandabekkir í Sirolo og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið.

    Annað:

    Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 20. júní. Greitt er beint til Cinquecento Viaggi srl. Nákvæmar upplýsingar varðandi erlenda millifærslu verða sendar til þátttakenda.

    Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

  • Nánari upplýsingar um ferðina

    Fjöldi þátttakenda mun takmarkast við aðeins 30 manns.

    Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns.

    Haldinn verður kynningarfundur þn23 maí nk. Tími og staðsetning verður send út síðar á Facebook síðu InItalia sem og í pósti til þeirra aðila sem hafa nú þegar forskráð sig í ferðina.