Dekur, matur & menning í Marche, Umbria og Róm

8. - 14. ágúst 2024

Draumaferð til Ítalíu!

Heildarverð ferðar er 289.000 kr. miðað við tvo í herbergi. Aukagjald fyrir þá sem vilja vera í einstaklingsherbergi er 42.000 kr.                                                                                                                                                            Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri.
Rútuferðir skv. ferðalýsingu.
Morgunverður alla daga.
5 nætur á 4 stjörnu SPA hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche.
Dekurdagur á hótelinu okkar Borgo Lanciano og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins.
Skoðunarferð til fríríkissins San Marino ásamt vínsmökkun. 
Skoðunarferð til Assisi, fæðingarbæ heilags Franscesco, verndara Ítalíu. 
Skoðunarferð til Gubbio í Umbria og ólívuolíusmökkun. 
Strandarferð til Sirolo við Conero ströndina. 
Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt kvöldverði í nágrenni við Vatíkanið.
Gisting 1 nótt á 4 stjörnu hóteli skammt frá Róm.
Möguleg skoðunarferð til Lido di Ostia á brottfarardegi, ef tími gefst til.
Íslensk fararstjórn.
Ekki innfalið: 
Aðangur að söfnum, gistinóttaskattur sem innheimtur er á hótelum, aðgangur að Spa í Borgo Lanciano þá daga sem ferðir eru í boði, sem og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið.

Athugið:
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og er óafturkræft nema ferð verði aflýst. Ferðin er skipulögð í samstarfi við ítölsku ferðaskrifstofuna Cinquecento srl. (eða 500 eins og Fiatinn frægi), sem er með aðsetur í Marche og hefur í yfir áratug ferðast með yfir 1000 Íslendinga vítt og breitt um Ítalíu.
Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrisjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Next
Next

NÁMSFRÍ