top of page
view-of-ancient-center-of-rome-on-capitoline-hill-2024-10-18-07-48-06-utc.jpg

Aðventuferð InItalia
til Rómar

3. - 7. desember 2025

  Aðeins eitt sæti laust. 

Screenshot 2025-06-29 at 17.10.19.png
Screenshot 2025-06-29 at 17.29.41.png
the-pantheon-temple-in-rome-with-a-historical-foun-2025-02-02-11-45-43-utc.jpg

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:00. Við söfnumst saman á flugvellinum og höldum saman þangað sem að 6-7 manna bílar bíða eftir að taka okkur beint á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Róm, ekki langt frá Vatíkaninu, þar sem við munum dvela næstu fjárar nætur. 

Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og  í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.

 

.

Dagur 2.

Skoðunarferð um helstu kennileiti og söguslóðir Rómar

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar.  Við munum leggja af stað frá hótelinu kl. 09:00 í 6-7 manna bílum sem munu flytja okkur þangað sem gönguferðin okkar hefst. 

Göngutúrinn mun enda á Piazza Navona um klukkan 13:00 og í framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

Gönguleiðsögn er innifalin .

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg
spanish steps II.jpg
capitolium-hill-piazza-del-campidoglio-in-rome-i-2024-12-10-00-33-36-utc.JPG
aerial-view-of-st-peter-s-basilica-2024-04-30-15-53-00-utc.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg

Dagur 3.

Péturskirkjan í Róm & Rómverskur hádegisverður í nágrenni vatíkansins.

Eftir morgunverð höldum við saman til Péturskirkjunnar í Róm. Þau sem vilja fremur heimsækja Vatíkansafnið munu getað nýtt tímann í það, en ráðlagt er að bóka skoðunarferð í safnið með góðum fyrirvara.

Péturskirkjan geymir ógrynni safngripa og menningarverðamæta, en einnig getur fólk farið upp í hvelfingu Péturskirkjunnar og notið útsýnissins þaðan yfir Róm, eða farið í hvelfingarnar fyrir neðan.

Hópurinn mun svo sameinast á veitingastað í nágrenni Vatíkansins, um klukkan 13:30, og borða saman síðbúinn hádegisverð.

Hádegisverður og meðfylgjandi veigar eru innfaldar.

 

Eftir hádegisverðinn er frjáls tími, sem fólk getur nýtt eins og best hentar. 

Dagur 4.

Gönguferð um gyðingahverfið, áleiðis til Trastevere

Eftir morgunverð, er frjáls tími.  Um kl. 16:00 munu Þau sem vilja getað hitt fararstjóra á fyrirfram ákveðnum stað á Campo di Fiori torginu og þaðan munum við ganga um hverfið, kynna okkur merka sögu þess, ásamt því að fræðast um þau áhrif sem matarhefðir íbúa höfðu á matarmenningu Rómar, sem og Ítalíu. 

 

Markaðurinn á Campo di Fiori verður í fullum gangi og við munum við stoppa aðeins og smakka á kræsingum og upplifa með eigin bragðlaukum sumt af þeim ljúffenga mat sem einkennir þetta hverfi, og hefur ekki síður haft áhrif á matarmenningu Rómar sem og Ítalíu. 

 

VIð höldum svo yfir Tíber fljótið til Trastevere hverfisins, sem er alveg einstakt, með þröngum götum og fjölbreyttri flóru verslana og veitingastaða. 

Göngunni mun ljúka á torgi heilagrar Maríu í Trastevere um klukkan 17:30 og eftir það er frjáls tími til að upplifa Trastevere og Róm eins og menn kjósa helst. 

​Gönguleiðsögnin ásamt smakki í gyðingahverfinu er innifalið. 

Screenshot 2025-06-29 at 18.55.15.png
Screenshot 2025-06-29 at 18.57.18.png
Screenshot 2025-06-29 at 19.00.33.png
rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Dagur 5.

Heimferð

Ferðadagur. Eftir snemmbúinn morgunverð munum við halda áleiðis til flugvallarins Fiumicino, um kl. 8:00

Brottför heim er áætluð kl. 11:30.

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 229.000 þúsund krónur á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 40.000 þúsund krónur við verð ferðar. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Allur akstur samkvæmt lýsingu. Morgunverður alla daga. 4 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli miðsvæðis í Róm, skammt frá Vatíkaninu. Hótelið er með spa aðstöðu. Skoðunarferð um helstu kennileyti og sögustaði Rómar með íslenskri leiðsögn. Skoðunarferð um gyðingahverfið og svo til Trastevere með íslenskri leiðsögn. Smakk á réttum í gyðingahverfinu. Heimsókn í Péturskirkjuna. Ekta ítalskur hádegisverður með drykkjum, í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hótelum, og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 55.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast 5 vikum fyrir brottför. Athugið að sætaframboð í þessa ferð er takmarkað. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hér er hægt að skrá sig á forgangslista fyrir ferðina!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

InItalia Travel

bottom of page