top of page
touristic-town-positano-on-rocky-cliffs-and-moun-2025-03-16-14-21-28-utc.jpg
Hjólað um ein fegurstu svæði Ítalíu

Rafhjólað um Róm og Cilento-þjóðgarðinn, gengið eftir Stíg guðanna á Amalfí-ströndinni

18. - 25. maí 2027

  Takmarkaður sætafjöldi. 

Screenshot 2026-09-06 at 18.07.26.png

Ferðin er skipulögð í samstarfi við Hjólreiðasamband Ítalíu.

Screenshot 2025-11-02 at 15.29.39.png

Dagur 1.

Screenshot 2025-10-19 at 18.08.24.png
Screenshot 2025-06-29 at 17.29.41.png

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:34. Við söfnumst saman á flugvellinum og höldum saman þangað sem að 6-7 manna bílar bíða eftir að flytja okkur beint á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Róm, ekki langt frá Vatíkaninu, þar sem við munum dvela næstu tvær nætur. 

Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og  í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.

​​

 

.

the-pantheon-temple-in-rome-with-a-historical-foun-2025-02-02-11-45-43-utc.jpg

Dagur 2.

Skoðunarferð á rafhjólum um Róm & ítalskur hádegisverður við Vatíkanið

Eftir morgunverð fáum við afhent hjólin okkar sem við munum hafa út ferðina. Í framhaldi verður haldiið í skoðunarferð á rafhjólum með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar. Leiðin sem farin verður er örugg og að mestu á stígum þar sem bílaumferð er takmörkuð eða engin.

Skoðunarferðinni lýkur í sameiginlegum hádegisverði á veitingastað í nágrenni við Péturskirkjuna. Þar munum við njóta saman dýrindis veiga á rómverska vísu.

Í framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg
spanish steps II.jpg
Pasetum hótel og tjöld.jpg
Screenshot 2025-11-02 at 15.41.31.png
Paestum sundlaugar.jpg
paestum vínrekki.jpg

Dagur 3.

Haldið til hótelsins okkar við Agropoli og Paestum

Eftir morgunverð höldum við beint á fimm stjörnu hótelið sem bíður okkar rétt fyrir utan Agropoli og Paestum, þar sem við munum dvelja næstu fimm næturnar.

Aksturinn mun taka um 4 klukkustundir en stoppað verður á leiðinni svo að fólk geti fengið sér snarl eða komist á salernið.

 

Agropoli er fallegur strandbær á suðurhluta Ítalíu, í héraðinu Salerno í Campania. Bærinn stendur við Cilento-ströndina og er hluti af Cilento- og Vallo di Diano-þjóðgarðinum, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

Paestum er stórmerkileg forngrísk borg frá um 6 öld f. Kr. Þar gefur að finna mjög heilleg og stórbrotin hof, umkringd hinum fornu borgarmúrum sem enn standa að mestu leyti óbreyttir. 

Agropoli er þekktur fyrir sögulega gamla bæinn sinn, sem stendur á klettahæð með útsýni yfir Miðjarðarhafið. Þar má finna þröngar steinlagðar götur, miðaldavarnargarða og kastala frá Býsans- og Normannatímanum.

 

Nútímalegi hluti bæjarins hefur fallega strönd, líflegt hafnarsvæði og fjölmarga veitingastaði og kaffihús.

Agropoli er vinsæll áfangastaður fyrir ferðamenn sem vilja kanna Amalfi-ströndina, Cilento-svæðið og rústirnar í Paestum.

Eftir innritun á hótelið er frjáls tími sem fólk getur notað til að slaka á á sundlaugarsvæði hótelsins eða kanna nánasta umhverfið.

Dagur 4.

Hjólað frá Agropoli til Pioppi

Við munum vakna í morgunmat snemma og förum í rútu til Agropoli, sem er nokkra kílómetra frá, þar sem hjólunum verður úthlutað. Þennan daginn verður haldið frá þessu gullfallega sjávarþorpi áleiðis til Pioppi, lítillar og sögufrægrar strandbyggðar sem er þekkt sem vagga Miðjarðarhafsmataræðisins. 

Leiðin sem við munum hjóla á milli Agropoli og Pioppi er falleg og fjölbreytt leið meðfram ströndinni í Cilento-þjóðgerðinum, þar sem við munum upplifa ægifagra náttúru, langa sögu svæðisins og falleg ítölsk sjávarþorp í einni hjólaferð. 

VIð munum stoppa á leiðinni í Castellabate, fallegum miðaldabæ, á hæð með stórbrotið útsýni yfir ströndina og litlu þorpin fyrir neðan. ​ Þaðan heldur hjólatúrinn áfram eftir mjúkum hæðum og strandvegi til Pioppi,

Leiðin er með blöndu af mjúkum brekkum og sléttum köflum, og býður upp á kyrrð, fallegt útsýni og dæmigerðan suður-ítalskan sjarma.

Hjólaferðinni mun ljúka í Pioppi, þar munum við skila af okkur hjólunum og í framhaldi fá okkur ljúffengan hádegisverð og fá tækifæri til að gæða okkur á afurðum úr þessu fallega héraði. 

 

Hádegisverður með víni er innifalinn í verði.

Vegalengd sem hjóluð er: 39,4 km. 

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 774 metrar

Lækkun 771 metri

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

Screenshot 2025-11-03 at 13.08.21.png
Screenshot 2025-11-03 at 20.24.55.png
happy-cyclist-woman-riding-in-public-park-with-ele-2024-11-02-23-29-53-utc.jpg
Screenshot 2025-11-03 at 20.20_edited.jp
Screenshot 2025-11-03 at 20.27_edited.jp

Dagur 5.

Screenshot 2026-09-06 at 15.54.36.png
IMG_4369.jpeg
IMG_4332_edited.jpg
IMG_4399.jpeg

Hjólað um hæðir og dali í nágrenni við Eboli.

Eftir morgunverð flytur rúta hópinn til róta Eboli sem er sögufræg miðaldaborg er stendur í ægifögru og hæðóttu landbúnaðarsvæði.

 

Eftir að við fáum hjólin okkar afhent fáum munum við halda af stað í ævintýralega hjólaferð um svæðið. Á leiðinni verður komið víða við.

Hjólað verður upp í og um gamla miðaldabæinn og lítið inn í merkilegt safn sem þar stendur ofarlega, áður en haldið verður áfram um hæðirnar. 

Komið verður við hjá olífuolíuframleiðendum sem sömu fjölskyldurnar hafa staða saman að kynslóðum saman. Þar munum við kynnast fólkinu sem að þessu stendur og lífsháttum þeirra ásamt því að smakka fjölbreyttum afurðum sem framleiddar eru á svæðinu ásamt víni og olífuolíunni þeirra. 

Eftir heimsóknina verður haldið áfram um þessar fallegu hæðir og dali og endum á sveitasetri uppi hæðunum á stórri landareign þar sem við skilum af okkur hjólunum og í framhaldi verður boðið þar upp á hádegisverð að ítölskum hætti. 

 

Eftir hádegisverðinn mun rúta flytja okkur tilbaka til hótelsins þar sem fólk hefur frjálsan tíma til að slaka á við sundlaugarbakka hótelsins, strandasvæði hótelsins eða kanna nærumhverfið nánar. 

Hádegisverður með víni er innifalinn í verði.

Vegalengd sem hjóluð er: 34 km. 

Erfiðleikastig: Létt

Hækkun: 320 metrar

Lækkun 130 metrar

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól

IMG_4292.jpeg

Dagur 6.

Hjólað um Agropoli & Paestum 

Við munum vakna snemma í morgunmat hjólunum verður úthlutað fyrir utan hótelið um kl. 08:00. Þaðan leggjum við svo af stað í hringferð um nærsvæðið sem mun enda aftur á hótelinu 3 - 4 klukkustundum síðar. Stefnan verður fyrst tekin á fallega sjávarþorpið Agropoli.

Agropoli er fallegur strandbær í héraðinu Salerno í Campania. Bærinn stendur við Cilento-ströndina og er hluti af Cilento- og Vallo di Diano-þjóðgarðinum, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

Agropoli er þekktur fyrir sögulega gamla bæinn sinn, sem stendur á klettahæð með útsýni yfir Miðjarðarhafið. Þar má finna þröngar steinlagðar götur, miðaldavarnargarða og kastala frá Býsans- og Normannatímanum.

 

Nútímalegi hluti bæjarins hefur fallega strönd, líflegt hafnarsvæði og fjölmargar veitingastaði og kaffihús.

Þaðan munum við svo halda áleiðis til Paestum sem er forn grísk borg sem stofnuð var á 6. öld f. Kr. af grískum landnemum og hét upphaflega Poseidonia, eftir sjávarguðinum Poseidoni.

 

Paestum er fræg fyrir einstaklega vel varðveitta hof sín í dórískum stíl, sem teljast til fegurstu fornminja í allri Ítalíu.

 

Þar má sjá þrjú stór hof, helguð Heru, Aþenu og Poseidoni. Borgin hefur einnig rómverskar rústir, götur, leikhús og veggmyndir.

Á svæðinu er fornminjasafn sem sýnir gripi úr uppgröftum og frægar grafarmyndir eins og grafhýsi kafaranna og fleiri dýrgripi. 

Rafhjólatúr um Paestum-svæðið er róleg og falleg leið til að upplifa svæðið og sögu þess og hægt er að hjóla fram hjá hinum glæsilegu hofum Heru, Poseidons og Aþenu og njóta útsýnisins yfir forna borgina og sveitina í kring.

 

Eftir heimsókn í Paestum fornleifasvæðið höldum við aftur heima á hótel þar sem við skiljum við hjólin. Í framhaldi munum við borða saman hádegisverð á veitingastað nálægt hótelinu og smakka á afurðum úr þessu fallega héraði en svæðið er mikið landbúnaðarhérað., ekki síst í  Sele-dalnum þar sem mikil ræktun fer fram. Einnig eru þarna framleiddir hinir frægu mozzarella di bufala, unnir úr mjólk vatnabuffalóa.

Eftir hádegisverðinn hefur fólk frjálsan tíma til að slaka á við sundlaugarbakka hótelsins, strandasvæði hótelsins eða kanna nærumhverfið nánar. 

Hádegisverður er innifalinn í verði.

Vegalengd sem hjóluð er: 32 km. 

Erfiðleikastig: Létt

Hækkun: 38 metrar

Lækkun 38 metrar

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól

Screenshot 2025-11-03 at 23.12.46.png
Screenshot 2025-11-03 at 13.06.52.png
the-temple-of-neptune-it-was-built-in-the-doric-or-2025-10-07-00-50-23-utc.jpg
the-greek-temple-of-hera-ii-paestum-italy-2025-03-16-03-24-58-utc.jpg
Screenshot 2025-11-03 at 23.16.58.png
stunning-view-of-amalfi-coast-cliffs-meeting-the-v-2025-01-10-03-27-51-utc.jpg
picturesque-coastal-italian-town-of-amalfi-coast-2026-03-18-04-31-07-utc.jpg
Screenshot 2026-09-06 at 16.34.53.png

Dagur 7.

Amalfi-ströndin. Sigling og ganga um stíg guðanna.

Eftir morgunverð mun rúta flytja okkur til Salerno þar sem við förum um borð í litla ferju sem flytur okkur til Amalfi bæjarins, sem strandlengjan dregur nafn sitt af.

 

Amalfi ströndin er ein af fegurstu strandlengjum Ítalíu og það er einstök og ógleymanleg reynsla að upplifa hana frá hafi, en siglingin mun taka rétt rúma klukkustund. 

 

Eftir komuna til Amalfi mun gefast smá tími til að skoða sig um áður en að við leggjum upp í gönguferð um stíg guðanna, á milli bæjanna Bomerano, sem er rétt ofan við Amalfi, og Nocella sem er rétt ofan við hinn ægifagra bæ Positano. Á leiðinni gefst nægur tími til að dást að tilkomumiklu útsýninu yfir Adríahafið og taka myndir.

Svæðið er á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakrar byggingarlistar, náttúrufegurðar og menningararfleifðar.

Frá Nocella munum við ganga niður til Positano og eftir það verður frjáls tími til að hver og einni geti upplifað þennan yndislega stað eins og hentar. 

Við höldum svo frá Positano til Salerno með ferjunni og þar mun rútan flytja okkur aftur heim á hótelið.

​Göngutími er um 4 klst

Erfiðleikastig: Miðlungs krefjandi ganga

Hækkun: 320 metrar

Lækkun 580 metrar

Screenshot 2026-09-06 at 16.36.02.png
Screenshot 2026-09-06 at 16.35.25.png
positano-resort-italy-2026-03-10-04-51-1
cliff-side-buildings-by-sea-positano-amalfi-coas-2025-04-03-05-09-40-utc.jpg

Dagur 8.

Ferðadagur

Eftir morgunverð, munum við tékka út af hótelinu og halda af stað áleiðis til Fiumicino-flugvallarins, en þangað er um 4 klukkustunda akstur. 

 

Stoppað verður á leiðinni til að hægt verði að fara á salerni eða kaupa sér eitthvað að borða. 

Brottför heim er áætluð kl. 15:45.

rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 459.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 75.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Bagbee þjónusta sem sér um innritun ferðalanga sem og flutning á innrituðum töskum deginum fyrir brottför þannig að ferðalangar geta mætt beint í öryggishliðið þegar þeim hentar án vandræða og biða. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður á hótelum alla daga. 2 nætur á 4 stjörnu Spa hóteli í Róm. Skoðunarferð á rafhjólum um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði í nágrenni við Vatíkanið. 5 nætur á glæsilegu 5 stjörnu hóteli við Agropoli & Paestum. Leiga á rafhjólum í fjóra daga ásamt fylgdarbílum, aðstoðar- og leiðsögumanna á hjóladögum. Hjólaferð um Cilento þjóðgarðinn. Hádegisverður þar sem afurðir úr héraði eru smakkaðar. Hjólaferð um Agropoli og Paestum ásamt hádegisverði í nágrenni við hótelið. Sigling meðfram Amalfi ströndinni fram og tilbaka frá Salerno. Gönguferð eftir Stíg guðanna með leiðsögumanni. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 6 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Skráðu þig á forgangslista fyrir ferðina hér!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

Initalia

bottom of page