top of page
Screenshot 2026-03-20 at 18.43.21.png
Fimm bestu golfvellirnir við Gardavatn

Einstök golfferð þar sem spilað verður á fimm bestu golfvöllunum við Gardavatn og svo haldið til hinna óviðjafnanlegu borga, Verona og Feneyja

15. - 22. september 2026

 Takmarkaður sætafjöldi 

Screenshot 2026-04-15 at 10.39.35.png

Fararstjórar ferðarinnar

Auk Guðjóns & Jóhönnu mun þrautreyndur golfari og golfferðarfari, Haukur Gíslason sjá um golfupplifun ferðarinnar ásamt því að hafa umsjón með golfmóti á hinum stórskemmtilega San Vigilo golfvelli

"Sem ástríðufullur golfari í áratugi hef ég ferðast víða um heim í leit að framúrskarandi golfupplifunum og kynnst því sem skilur hið góða frá hinu einstaka. Sú reynsla hefur mótað nálgun mína að skipulagningu golfferða, þar sem áhersla er lögð á gæði, smáatriði og heildarupplifun.

 

Í þessari ferð við Gardavatn er markmiðið að sameina golf á úrvals völlum við það besta sem svæðið hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Dagskráin er sett saman með það að leiðarljósi að skapa þægilegt flæði og afslappaðan en fágaðan ramma, þar sem þátttakendur geta notið hvers augnabliks á vellinum, við borðið og í góðum félagsskap.

 

Ég legg metnað í að tryggja að golfhluti ferðarinnar sé hnökralaus og vel útfærður, þannig að gestir geti einfaldlega slakað á og upplifað þetta einstaka svæði."

Haukur Gíslason

Screenshot 2026-04-05 at 10.31.30.png
IMG_8780.jpeg
panoramic-view-of-limone-sul-garda-village-and-lak-2026-01-11-10-13-32-utc.jpg
Screenshot 2026-03-20 at 18.58.37.png

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 með áætlaða lendingu í Feneyjum kl. 15:00.

Frá Marco Polo flugvellinum höldum við beint á fjögurra stjörnu spa-hótelið okkar. Áætluð koma þangað er um kl. 17:30, en hótelið er í 1.5 klst. akstri frá flugvellinum.

Hótelið okkar næstu fimm nætur er glæsilegt fjögurra stjörnu spa-hótel, í hæðunum rétt við Garda.  Það er þekkt fyrir stórbrotið útsýni yfir vatnið og rólegt, náttúrulegt umhverfi.

Hótelið býður upp á stílhrein herbergi með svölum eða verönd, sundlaug, heilsulind (spa) og veitinga- og barþjónustu.  Eftir ævintýri dagsins verður hægt að njóta þess að slappa af í þessu einstaklega fallega umhverfi.

​​

Þetta kvöld er fjögurra rétta kvöldverður á hótelinu innifalinn (án drykkja).

Screenshot 2026-03-20 at 18.56.49.png

Dagur 2.

top-view-of-scaligera-castle-and-sirmione-on-lake-2026-01-09-07-25-18-utc.jpg
Screenshot 2026-03-21 at 12.22.28.png
Screenshot 2026-03-21 at 12.23.37.png

Fyrsta áskorun, Arzaga golfvöllurinn

Við munum hittast klukkan 8:30 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu áleiðis til Arzaga golfvallarins, sem er í rétt rúmlega klukkustunda  akstri frá hótelinu.  Á leiðinni munum við gera stutt stopp í miðaldabænum Sirmione.

Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 13:10 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili. 

Arzaga er 27 holu golfvöllur (18 holu Championship + 9 holu hringur) nálægt suðvesturhluta Garda-vatnsins. 

Völlurinn er hannaður af Jack Nicklaus II og Gary Player, og býður upp á breiðar brautir en vel varðar flatir með bunkurum og vatni. 

Í stuttu máli fyrir golfara: Völlur sem er vinalegur af teig en krefjandi inn á flöt. Góð blanda af flæði í spili og taktískum áskorunum, í mjög fallegu landslagi.

Arzaga golfvöllurinn er með 20 golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum. 

Eftir fjölbreyttan og krefjandi dag þá munum við safnast saman og halda til hótelsins.

Dagur 3.

Önnur áskorun, Golfklúbbur Verona / Verona borg

Við munum hittast klukkan 9:00 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu áleiðis til Verona golfvallarins, sem er í um 35 mínútna akstri frá hótelinu. 

Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 10:40 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili. 

Golfklúbbur Verona er 27 holu "parkland“ völlur í mjúku, hæðóttu landslagi með trjáklæddum brautum. Völlurinn er vel jafnvægur,  býður upp á leikvænar upphafsholur, en verður tæknilegri með þrengri línum, hundleggjum og vel vörðum flötum.

Í stuttu máli fyrir golfara: klassískur og vel hannaður völlur þar sem nákvæmni af teig og gott járnaspil skila bestum árangri.

Golfklúbbur Verona er með um 20 golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 40 - 50 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum. 

Þegar allir hafa lokið spili munum við safnast saman og halda í stutta heimsókn til hinnar fögru Verona borgar sem er í 25 - 30 mínútna akstri frá golfklúbbnum. 

Eftir komuna til Verona munu farastjórar bjóða upp á stutta gönguleiðsögn um miðbæinn sem endar á hefðbundnum veronskum veitingastað,  rétt hjá Piazza delle Erbe. Þar verður boðið upp á veronskan aperitivo að hætti heimamanna, þar sem borðaðir eru ýmsir smáréttir, með drykkjunum. Í framhaldi verður frjáls tími þar til að við höldum til hótelsins um klukkan 20:00.

fountain-of-piazza-delle-erbe-verona-veneto-ita-2025-10-16-22-20-40-utc.jpg
Screenshot 2026-03-21 at 13.02.38.png
Screenshot 2026-03-21 at 12.51.03.png
Screenshot 2026-03-21 at 13.05.08.png
aerial-view-of-verona-arena-roman-amphitheater-in-2025-01-08-09-03-32-utc.jpg
Screenshot 2026-03-20 at 21.04.19.png
Screenshot 2026-03-20 at 21.08.01.png
sunset-at-the-castle-lush-green-grape-vines-with-2026-01-11-10-17-45-utc.jpg

Dagur 4.

þriðja áskorun, Franciacorta golfvöllurinn leikinn

Við munum hittast klukkan 9:30 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu til Franciacorta golfvallarins, sem er í um klukkustunda akstri frá hótelinu. 

Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 11:40 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili. 

Golfvöllurinn er staðsettur mitt í hinu rómaða  Franciacorta svæði sem er ægifagurt vínræktarsvæði og þekkt fyrir framleiðslu á hágæða freyðivíni eða Franciacorta. Franciacorta er framleitt með sömu hefðbundnu aðferð og frönsk kampavín.

Franciacorta er fallegur 27 holu golfvöllur (þrír 9 holu hringir) sem liggur í hæðóttu og skógi vöxnu landslagi, vestan megin við Gardavatnið.

 

Völlurinn er þrengri og tæknilegri en margir aðrir á svæðinu, og gerir kröfur um nákvæmni á teig og einbeitni í vallarleik.

Í stuttu máli fyrir golfara: krefjandi völlur þar sem staðsetning og stjórn skipta meira máli en lengd – mjög skemmtilegur fyrir þá sem hafa gaman af taktísku golfi.

Franciacorta golfvöllurinn er einungis með 15 golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum. 

Eftir krefjandi dag þá mun hópurinn sameinast og halda í vínsmökkun, á hinni rómuðu Franciacorta þrúgu, í nágrenni við völlinn, áður en haldið verður tilbaka á hótelið.

Dagur 5.

Fjórða áskorun, Colli Berici golfvöllurinn leikinn

Við munum hittast klukkan 8:30 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu til Colli Berici golfvallarins, sem er í rétt um klukkustunda  akstri frá hótelinu. 

Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 10:40 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili. 

Colli Berici völlurinn er fremur þröngur og með miklum hæðarmun, sem gerir staðsetningu teigar lykilatriði og spilun á honum krefst mun frekar getu til nákvæmni en lengdar.

Í stuttu máli fyrir golfara: tæknilegur og fjölbreyttur völlur þar sem stefnumótun og stutt spil geta ráðið úrslitum, en allan tímann í gullfallegu og rólegu umhverfi. 

Colli Berici golfvöllurinn er með 20 golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er um 40 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum. 

Eftir krefjandi dag þá munum við safnast saman og halda aftur til hótelsins. 

Við gerum ráð fyrir að vera komin tilbaka á hótelið um kl. 17:00

Þetta kvöld er fjögurra rétta kvöldverður á hótelinu innifalinn (án drykkja).

Screenshot 2026-03-20 at 21.28.36.png
Screenshot 2026-03-20 at 21.31.14.png
Screenshot 2026-03-20 at 21.33.17.png
Screenshot 2026-03-20 at 19.39.28.png
Screenshot 2026-03-20 at 19.49.26.png
Screenshot 2026-04-23 at 17.24.54.png

Dagur 6.

Lokadagur í golfi, golfmót á San Vigilo golfvellinum.

Spennandi dagur framundan.

Við munum hittast með farangurinn okkar fyrir utan hótelið og halda saman í rútu klukkan 9:30, áleiðis til golfvallarins San Vigilo sem er í um 45 mínútna akstri frá hótelinu.

Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 11:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili. 

San Vigilio golfvöllurinn er 27 holu meistaramótsvöllur (auk 9 holu æfingavallar) sem liggur í fallegu, hæðóttu landslagi með ólífulundum og víðáttumiklu útsýni. Völlurinn einkennist af breiðum brautum sem henta flestum kylfingum, en krefst samt nákvæmni vegna vatnshindrana, bunkera og þykks gróðurs.

Í stuttu máli fyrir golfara: fjölbreyttur og vel hannaður völlur sem sameinar afslappað leikflæði og tæknilegar áskoranir, í einstaklega fallegu umhverfi við Gardavatnið.

San Vigilio golfvöllurinn býr ennfremur að um 50 golfbílum. Fyrir þá sem hafa í hyggju að nota golfbíl, þá væri ráðlegt að bóka hann með góðum fyrirvara. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 55 EUR. Greitt er fyrir þá á staðnum. 

Eftir að allir hafa lokið við sinn hring og slakað á, mun hópurinn safnast saman áður en við höldum svo saman á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Mestre í Feneyjum. Gert er ráð fyrir að við verðum komin þangað um klukkan 19:00 í síðasta lagi.

.

Dagur 7.

Skoðunarferð til Feneyja.

Eftir morgunverð förum við saman í stuttan göngutúr til lestarinnar sem mun taka okkur til Feneyja. 

 

Lestarferðin þangað ætti að taka um 20 mínútur og þaðan förum við um borð í nokkra litla leigubáta sem munu flytja okkur á hið sögufræga og magnaða Markúsartorg.

 

Þaðan verður boðið upp á stutta skoðunarferð, fyrir þau sem vilja, sem mun enda við gamla fiskimarkaðinn nálægt Rialto brúnni. 

​Í framhaldi verður frjáls tími fyrir ferðalanga til að upplifa þessa töfrandi borg á sinn hátt. 

Þeir sem vilja geta hitt fararstjóra um klukkan 18:00 á fyrirfram ákveðnum stað við lestarstöðina, þaðan sem haldið verður heim á hótelið.

 

Öðrum er frjálst að vera áfram í Feneyjum fram á kvöld og halda til hótelsins á eigin vegum. 

venice-italy-gondolier-looking-for-next-tourists-2024-10-14-06-46-14-utc.jpg
basilica-santa-maria-della-salute-in-venice-2025-03-09-09-11-31-utc.jpg
rialto-bridge-at-grand-canal-in-venice-italy-arc-2024-10-17-19-24-05-utc.jpg
Screenshot 2026-04-15 at 10.28.29.png
Screenshot 2025-11-04 at 17.52.31.png

Dagur 8.

Ferðadagur

Eftir morgunverð, mun ferðalöngum gefast smá tími til að rölta um og mögulega kíkja í verslunarmiðstöðina sem er rétt hjá hótelinu, en 12:00 þurfa að allir að vera búnir að tékka út og gera upp við hótelið, því þá höldum við saman til Marco Polo flugvallarins.

 

Flugvöllurinn er í innan við 20 mínútna akstri frá hótelinu.

 

Brottför heim er áætluð kl. 16:10.

aerial-drone-view-of-venice-italy-2026-03-19-01-47-27-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 449.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 90.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Feneyja ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri ásamt innrituðu gólfsetti Transfer til og frá flugvellinum í Feneyjum. Morgunverður á hótelum alla daga. 5 nætur á 4 stjörnu hóteli rétt ofan við Garda-vatnið 2 nætur á glæsilegu 4 stjörnu Sheraton hóteli í Mestre við Feneyjar. Kvöldverður (án drykkja) við komuna til hótelsins við Garda-vatnið og einnig síðasta kvöldið. Akstur til og frá hóteli á alla gólfvelli, samkvæmt ferðalýsingu. Green fee á alla þá fimm gólfvelli sem taldir eru upp í ferðalýsingu. Vínsmökkun í Franciacorta. Skoðunarferð um helstu kennileiti Verona ásamt aperitivo að hætti Verona búa, með drykk og léttu snarli. Skoðunarferð til Feneyja. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, spa þjónusta á hóteli, gólfbílar og önnur þjónusta sem gólfarar velja sér sjálfir. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 6 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

2025-001.jpg

Initalia

bottom of page