
Fararstjórar ferðarinnar
Auk Guðjóns & Jóhönnu mun þrautreyndur golfari og golfferðarfari, Haukur Gíslason sjá um golfupplifun ferðarinnar ásamt því að hafa umsjón með golfmóti á hinum magnaða golfvelli San Vigilio
"Sem ástríðufullur golfari í áratugi hef ég ferðast víða um heim í leit að framúrskarandi golfupplifunum og kynnst því sem skilur hið góða frá hinu einstaka. Sú reynsla hefur mótað nálgun mína að skipulagningu golfferða, þar sem áhersla er lögð á gæði, smáatriði og heildarupplifun.
Í þessari ferð við Gardavatn er markmiðið að sameina golf á úrvals völlum við það besta sem svæðið hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Dagskráin er sett saman með það að leiðarljósi að skapa þægilegt flæði og afslappaðan en fágaðan ramma, þar sem þátttakendur geta notið hvers augnabliks á vellinum, við borðið og í góðum félagsskap.
Ég legg metnað í að tryggja að golfhluti ferðarinnar sé hnökralaus og vel útfærður, þannig að gestir geti einfaldlega slakað á og upplifað þetta einstaka svæði."
Haukur Gíslason


Dagur 1.
Ferðadagur
Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 með áætlaða lendingu í Feneyjum kl. 15:00.
Frá Marco Polo flugvellinum höldum við beint á fjögurra stjörnu spa-hótelið okkar. Áætluð koma þangað er um kl. 17:30, en hótelið er í 1.5 klst. akstri frá flugvellinum.
Hótelið okkar næstu fimm nætur er glæsilegt fjögurra stjörnu spa- og golfhótel, sem staðsett er á 27 holu meistaravellinum San Vigilio, rétt sunnan við Gardavatnið.
Hótelið býður upp á stílhrein herbergi með svölum eða verönd, sundlaug, heilsulind (spa) ásamt veitinga- og barþjónustu. Eftir ævintýri dagsins verður því hægt að njóta þess að slappa af í einstaklega fallega umhverfi.
Öll herbergin eru með svölum eða verönd og golfarar hafa aðgang að spa svæði hótelsins eins og þeim hentar.
Þetta kvöld er innifalinn fjögurra rétta (velkomin) kvöldverður á hótelinu (án drykkja).




Dagur 2.
Fyrsta áskorun, meistarmótsvöllurinn San Vigilio




Framundan verður skemmtilegur dagur.
Að loknum morgunverði munu golfarar rölta í klúbbhús San Vigilio til að undirbúa sig fyrir daginn.
Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 9:40 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili. Fyrsta daginn er áætlað að spila tvær af fjórum 9 holu brautum San Vigilio, þá hvítu- og rauðu.
San Vigilio golfvöllurinn er 27 holu meistaramótsvöllur (auk 9 holu æfingavallar) sem liggur í fallegu, hæðóttu landslagi með ólífulundum og víðáttumiklu útsýni. Völlurinn einkennist af breiðum brautum sem henta flestum kylfingum, en krefst samt nákvæmni vegna vatnshindrana, bunkera og þykks gróðurs.
Í stuttu máli fyrir golfara er San Vigilio fjölbreyttur og vel hannaður völlur sem sameinar afslappað leikflæði og tæknilegar áskoranir, í einstaklega fallegu umhverfi við Gardavatnið.
San Vigilio golfvöllurinn býr ennfremur að um 50 golfbílum. Fyrir þá sem hafa í hyggju að nota golfbíl, þá væri ráðlegt að bóka hann með góðum fyrirvara. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 55 EUR. Greitt er fyrir þá á staðnum.
Eftir að allir hafa lokið við sinn hring er frjáls tími, þar sem golfarar getað slakað á eins og þeim hentar best, á veitingasvæði klúbbhússins eða á spa svæði hótelsins.
.
Dagur 3.
Önnur áskorun, Arzaga golfvöllurinn leikinn
Við munum hittast klukkan 8:30 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu áleiðis til Arzaga golfvallarins, sem er í rétt rúmlega 40 mínútna akstri frá hótelinu.
Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Arzaga er 27 holu golfvöllur (18 holu Championship + 9 holu hringur) nálægt suðvesturhluta Garda-vatnsins.
Völlurinn er hannaður af Jack Nicklaus II og Gary Player, og býður upp á breiðar brautir en vel varðar flatir með bunkurum og vatni.
Í stuttu máli fyrir golfara er Arzaga völlur sem er vinalegur af teig en krefjandi inn á flöt. Góð blanda af flæði í spili og taktískum áskorunum, í mjög fallegu landslagi.
Arzaga golfvöllurinn er með 20 golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Eftir fjölbreyttan og krefjandi dag þá munum við safnast saman og halda til hótelsins.







Dagur 4.
Þriðja áskorun, Franciacorta golfvöllurinn leikinn
Við munum hittast klukkan 9:30 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu til Franciacorta golfvallarins, sem er í um klukkustunda akstri frá hótelinu.
Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 11:40 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Golfvöllurinn er staðsettur mitt í hinu rómaða Franciacorta svæði sem er ægifagurt vínræktarsvæði og þekkt fyrir framleiðslu á hágæða freyðivíni eða Franciacorta. Franciacorta er framleitt með sömu hefðbundnu aðferð og frönsk kampavín.
Franciacorta er fallegur 27 holu golfvöllur (þrír 9 holu hringir) sem liggur í hæðóttu og skógi vöxnu landslagi, vestan megin við Gardavatnið.
Völlurinn er þrengri og tæknilegri en margir aðrir á svæðinu, og gerir kröfur um nákvæmni á teig og einbeitni í vallarleik.
Í stuttu máli fyrir golfara þá er Franciacorta krefjandi völlur þar sem staðsetning og stjórn skipta meira máli en lengd. Völlurinn er mjög skemmtilegur fyrir þá sem hafa gaman af taktísku golfi.
Franciacorta golfvöllurinn er einungis með 13 golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Eftir krefjandi dag þá mun hópurinn sameinast og halda í vínsmökkun, á hinni rómuðu Franciacorta þrúgu, örfáar mínútur frá golfvellinum. Vínsmökkunin og snarlið með er innifalið í ferðinni.
Ef að hópurinn vill þá er hægt að skipuleggja sameiginlegan kvöldverð í klúbbhúsinu á Franciacorta, þar sem hægt er að sitja úti með útsýni yfir völlinn.
Dagur 5.
Fjórða áskorun, Garda golfvöllurinn leikinn
Við munum hittast klukkan 9:00 fyrir utan hótelið og halda saman í rútu til Gardagolf golfvallarins, sem er í rétt um 30 mínútna akstri frá hótelinu.
Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 10:40 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Gardagolf Country Club er glæsilegur 27 holu meistaramótsvöllur í hæðunum við suðvesturhluta Gardavatns, skammt frá Soiano del Lago. Völlurinn er um 110 hektarar og þaðan nýtur útsýnis yfir Gardavatn, vínræktarhéraðið Valtènesi sem og nærliggjandi þorpa og kastala. Fyrstu 18 holurnar voru teknar í notkun 1986 og hannaðar af breska hönnunarfyrirtækinu Cotton, Pennick, Steel & Partners í samstarfi við Golf & Gardens. Níu holum var síðan bætt við árið 1990.
Völlurinn skiptist í dag í þrjá 9 holu hluta:
- White Course – tiltölulega flatur, með breiðum brautum, vatnstorfærum og miklum trjágróðri.
- Red Course – hæðóttari og tæknilegri, með stórkostlegu útsýni yfir vatnið og Soiano-kastalann.
-Yellow Course – nýjasti hlutinn, sem lagður er um sögulegan garð Villa Omodeo, með fjölbreyttum trjágróðri og fallegu náttúrulegu umhverfi.
Gardagolf hefur ennfremur mikla mótasögu og hefur þrisvar hýst Italian Open eða árin 1997, 2003 og 2018. Árið 1997 setti Bernhard Langer vallarmet, 64 högg, í Italian Open mótinu.
Í stuttu máli þá er þetta völlur fyrir þá sem vilja sameina góðan, krefjandi golfvöll og einstaklega fallegt ítalskt landslag. Hann er ekki bara þekktur fyrir golfið sjálft heldur einnig fyrir magnað útsýnið, vínakrana, ólífutrén og afgerandi ítalska stemningu.
Gardagolf er með þó allnokkra golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er um 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Eftir krefjandi dag þá munum við safnast saman og halda áleiðis til hótelsins með viðkomu í miðaldabænum Sirmione, sem stendur á örmjóu nesi sem gengur út í sunnanvert Gardavatnið. Þar munum við stoppa í um tvo klukkutíma áður en haldið er áfram til hótelsins sem er um 12 - 15 mínútna akstri frá. Þeir sem vilja geta að sjálfsögðu ákveðið að vera eftir í Sirmione og tekið leigubíl á hótelið seinna um kvöldið.
Þeir sem halda til hótelsins með rútunni geta gert ráð fyrir að verða komin tilbaka á hótelið um kl. 18:30
Tilvalið er að undirbúa sig vel fyrir næsta dag og pakka þar sem við munum halda til Feneyja, daginn eftir, að loknu móti og verðlaunaafhendingu.








Dagur 6.
Lokadagur í golfi, golfmót á San Vigilo / Haldið til Feneyja
Spennandi dagur framundan.
Að loknum morgunverði munum við taka farangurinn með okkur út af herberginu og tékka út af hótelinu. Starfsfólk mun koma farangrinum í geymslu og við munum síðan rölta til klúbbhússins til að undirbúa okkur fyrir mót dagsins.
Fyrsti fjögurra manna hópur er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Golfmótið verður á þeim tveimur níu holu völlum San Vigilio, sem ekki var spilað á fyrsta daginn, og verður í sameiginlegri umsjón Hauks og golfstjóra San Vigilio vallarins.
Eftir að allir hafa lokið keppni, munum við safnast saman í klúbbhúsinu til að slaka á, njóta veitinga, umhverfisins og skemmtilegs félagsskapar, þar til að úrslitin hafa verið talin og verðlaunaafhending getur farið fram.
Í framhaldi munum við svo halda saman til rútunnar, ásamt farangri og tilheyrandi, og keyra áleiðist til Feneyja Mestre.
Við komuna á hótelið munum við fá afhent herbergin og í framhaldi verður frjáls tími.
Við gerum ráð fyrir að vera komin til hótelsins um kl. 18:00
Dagur 7.
Skoðunarferð til Feneyja.
Eftir morgunverð förum við saman í stuttan göngutúr til lestarinnar sem mun taka okkur til Feneyja.
Lestarferðin þangað ætti að taka um 20 mínútur og þaðan förum við um borð í nokkra litla leigubáta sem munu flytja okkur á hið sögufræga og magnaða Markúsartorg.
Þaðan verður boðið upp á stutta skoðunarferð, fyrir þau sem vilja, sem mun enda við gamla fiskimarkaðinn nálægt Rialto brúnni.
Í framhaldi verður frjáls tími fyrir ferðalanga til að upplifa þessa töfrandi borg á sinn hátt.
Þeir sem vilja geta hitt fararstjóra um klukkan 18:00 á fyrirfram ákveðnum stað við lestarstöðina, þaðan sem haldið verður heim á hótelið.
Öðrum er frjálst að vera áfram í Feneyjum fram á kvöld og halda til hótelsins á eigin vegum.





Dagur 8.
Ferðadagur
Eftir morgunverð, mun ferðalöngum gefast smá tími til að rölta um og mögulega kíkja í verslunarmiðstöðina sem er rétt hjá hótelinu, en 12:00 þurfa að allir að vera búnir að tékka út og gera upp við hótelið, því þá höldum við saman til Marco Polo flugvallarins.
Flugvöllurinn er í innan við 20 mínútna akstri frá hótelinu.
Brottför heim er áætluð kl. 16:10.

Innifalið í verði:
Verð ferðar er 459.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 90.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Feneyja ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri ásamt innrituðu gólfsetti Transfer til og frá flugvellinum í Feneyjum á hótel Morgunverður á hótelum alla daga. 5 nætur á 4 stjörnu spa-hóteli sem staðsett er á San Vigilio golfvellinum. 2 nætur á glæsilegu 4 stjörnu Sheraton hóteli í Mestre við Feneyjar. Velkomin kvöldverður (án drykkja) við komuna til hótelsins við Gardavatnið. Akstur til og frá hóteli á alla gólfvelli, samkvæmt ferðalýsingu. Vínsmökkun nálægt hóteli Green fee á þá gólfvelli sem taldir eru upp í ferðalýsingu, alls fimm 18 holu hringir á fimm dögum. Vínsmökkun í Franciacorta. Skoðunarferð til Feneyja. Farið verður í stutta lestarferð frá hótelinu inn til Feneyja og þar verður hoppað upp í leigubáta sem flytja munu hópinn að San Marco torginu í Feneyjum. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, spa þjónusta á hóteli, gólfbílar og önnur þjónusta sem gólfarar velja sér sjálfir. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 7 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.


