
Fararstjórar ferðarinnar
Auk Guðjóns & Jóhönnu mun þrautreyndur golfari og golfferðarfari, Haukur Gíslason sjá um golfupplifun ferðarinnar ásamt því að hafa umsjón með golfmóti á hinum stórskemmtilega golfvelli Marco Simone
"Sem ástríðufullur golfari í áratugi hef ég ferðast víða um heim í leit að framúrskarandi golfupplifunum og kynnst því sem skilur hið góða frá hinu einstaka. Sú reynsla hefur mótað nálgun mína að skipulagningu golfferða, þar sem áhersla er lögð á gæði, smáatriði og heildarupplifun.
Í þessari ferð við Gardavatn er markmiðið að sameina golf á úrvals völlum við það besta sem svæðið hefur upp á að bjóða í mat og drykk. Dagskráin er sett saman með það að leiðarljósi að skapa þægilegt flæði og afslappaðan en fágaðan ramma, þar sem þátttakendur geta notið hvers augnabliks á vellinum, við borðið og í góðum félagsskap.
Ég legg metnað í að tryggja að golfhluti ferðarinnar sé hnökralaus og vel útfærður, þannig að gestir geti einfaldlega slakað á og upplifað þetta einstaka svæði."
Haukur Gíslason


Dagur 1.
Ferðadagur
Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:30. Við söfnumst saman á flugvellinum og höldum saman þangað sem að 6-8 manna bílar bíða eftir að flytja okkur beint á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Róm, ekki langt frá Vatíkaninu, þar sem við munum dvelja næstu tvær nætur.
Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og
í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.
.



Dagur 2.




Fyrsta áskorun, Marco Simone, hýsti Ryder Cup 2023
Eftir morgunmat munu fyrstu ráshóparnir leggja af stað í 6 - 8 manna, bílum til til Marco Simone golfvallarins sem er í um 35 mínútna akstri frá hótelinu. Gert er ráð fyrir að fyrstu hollin verði komið á völlinn a.m.k. 50 mínútum fyrir fyrsta rástíma.
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Marco Simone Golf & Country Club er glæsilegur 18 holu golfvöllur rétt utan við Róm. Völlurinn er sérstaklega þekktur fyrir að hafa hýst Ryder Cup 2023, þar sem Evrópa sigraði Bandaríkin.
Hann liggur í fallegu, opnu landslagi með miklu útsýni yfir sveitirnar í kringum Róm og kastalann Castello di Marco Simone. Það sem einkennir völlinn eru breiðar brautir og stórir flatir, sem gefa ákveðið svigrúm, en djúpar glompur, vatnshindranir og vel staðsettar torfur gera völlinn krefjandi.
Marco Simone er fremur nútímalegur mótsvöllur en hefðbundinn rómverskur parklandvöllur. Hann hentar því sérstaklega vel kylfingum sem vilja prófa völl sem hefur hýst golfmót á hæsta alþjóðlega keppnisstigi.
Í stuttu máli þá er Marco Simone er vandaður, nútímalegur og krefjandi mótsvöllur, og Ryder Cup tengingin gerir hringinn sérstaklega áhugaverðan fyrir golfara sem sækjast eftir áskorun sem og einstakri upplifun.
Marco Simone er með nokkurn fjölda golfbíla. Fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er um 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.
Dagur 3.
Önnur áskorun, Castelgandolfo golfklúbburinn
Eftir morgunmat munu fyrstu ráshóparnir leggja af stað í 6 - 8 manna, bílum til til Castelgandolfo golfklúbbsins sem er í um 40 mínútna akstri frá hótelinu. Gert er ráð fyrir að fyrstu hollin verði komið á völlinn a.m.k. 50 mínútum fyrir fyrsta rástíma.
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Country Club Castelgandolfo er mjög sérstakur 18 holu golfvöllur um 23 km suður af miðborg Rómar, nálægt Castel Gandolfo í Albanóhæðunum. Völlurinn er hannaður af hinum þekkta bandaríska golfvallahönnuði Robert Trent Jones Sr. og liggur í gömlum eldfjallagíg, sem gefur honum mjög fallegt og óvenjulegt yfirbragð.
Völlurinn liggur innan um aldargamlar ólífu-, eikar- og furutré, vínvið, sítrustré og fjölbreyttan annan Miðjarðarhafsgróður. Klúbbhúsið er í 17. aldar villu sem var reist fyrir Flavio Chigi kardínála, frænda Alexanders páfa VII. Þaðan er frábært útsýni yfir nánast allan völlinn.
Í stuttu máli, þá er Castelgandolfo meira en bara góður golfvöllur. Umhverfið er hlaðið af sögu og golfvöllurinn sér á parti og í einstöku umhverfi þar sem falleg ítölsk sveit, eldfjallalandslag og saga Rómar renna saman í eitt.
Fyrir golfara er hann því mjög áhugaverður kostur, sérstaklega ef upplifunin skiptir ekki minna máli en sjálft golfið.
Castelgandolfo er með nokkurn fjölda golfbíla en fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.








Dagur 4.
þriðja áskorun, Olgiata golfvöllurinn leikinn
Eftir morgunmat munu fyrstu ráshóparnir leggja af stað í 6 - 8 manna, bílum til til Olgiata golfvallarins sem er í um 35 - 40 mínútna akstri frá hótelinu. Gert er ráð fyrir að fyrstu hollin verði komið á völlinn a.m.k. 50 mínútum fyrir fyrsta rástíma.
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Olgiata golfklúbburin við Róm er einn þekktasti og virtasti golfklúbbur Ítalíu. Völlurinn er í um 20 km fjarlægð frá miðborg Rómar og er staðsettur í grænu og rólegu umhverfi. Olgiata er 27 holu völlur sem skiptist í tvo 18 holu hringi, vestur- og austurvöllin sem hafa mjög ólíkan karakter.
Vesturvöllurinn er eldri og hefðbundnari völlur, hannaður árið 1961 af C. Kenneth Cotton og síðar endurhannaður af Jim Fazio. Austurvöllurinn var hannaður af Jim Fazio, opnaður 1982, og hann er meira krefjandi hvað varðar landslag og staðsetningu hindrana. Töluvert er um furutré, eik og annan Miðjarðarhafsgróður, auk náttúrulegs hæðarmismunar sem gefur þessum velli mikinn karakter.
Almennt reynir völlurinn mikið á staðsetningu upphafshöggs, vallarlestur og nákvæmni inn á flöt. Hann er ekki endilega langur miðað við nútímavelli en getur verið mjög krefjandi. Olgiata hefur margoft hýst stórmót, þar á meðal Italian Open, og er talinn einn af hinum klassískum keppnisvöllum Evrópu.
Í stuttu máli þá er Olgiata klassískur, fallegur og taktískur ítalskur golfvöllur þar sem náttúrulegt landslag, gömul tré og vel staðsettar hindranir skipta meira máli en lengdin. Hann hentar sérstaklega vel kylfingum sem kunna að meta hefðbundinn parkland-völl með miklinn karakter.
Olgiata er með nokkurn fjölda golfbíla en fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.

Dagur 5.
Frjáls dagur í borginni eilífu / gönguferð um helstu kennileyti Rómar ásamt hádegisverði.
Eftir krefjandi síðustu daga munu golfarar fá kærkomna hvíld og tækifæri til að hlaða batteríin fyrir það sem framundan er.
Á hótelinu er spa aðstaða fyrir áhugasama en einnig er tilvalið að nota tækifærið til að kynnast Rómaborg aðeins betur og þeim gersemum sem hún hefur upp á að bjóða í menningu og mat.
Vatíkanið og Péturskirkjan eru í um aðeins 15 mínútna göngufæri frá hótelinu.
Fararstjórar eru boðnir og búnir til að aðstoða ferðalanga eða ráðleggja varðandi það sem áhuga gæti vakið í borginni.
Fyrir áhugasama þá munu farastjórar bjóða upp á valkvæðan göngutúr um helstu kennileyti Rómar, frá elsta hluta borgarinnar og göngutúrinn mun enda á einni af merkari perlum barrokktímans, eða Piazza Navona.
Í framhaldi verður haldið á veitingastað í nágrenni við Vatíkanið þar sem boðið verður upp á hádegismat að rómverskum hætti, með víni og vatni.
Gönguferðin mun alls taka um 3 klukkutíma með smá stoppi á Piazza di Spagna.








Dagur 6.
Fjórða áskorun, Acquasanta golfvöllurinn.
Eftir morgunmat munu fyrstu ráshóparnir leggja af stað í 6 - 8 manna, bílum til Roma Acquasanta golfvallarins sem er í um 35 mínútna akstri frá hótelinu. Gert er ráð fyrir að fyrstu hollin verði komið á völlinn a.m.k. 50 mínútum fyrir fyrsta rástíma.
Fyrsti fjögurra manna hópurinn er með bókaðan rástíma klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Circolo del Golf Roma Acquasanta er einn sögufrægasti golfvöllur Ítalíu og var stofnaður árið 1903, af hópi breskra og bandarískra diplómata. Hann er staðsettur við Via Appia, innan borgarmarka Rómar, og er oft talinn elsti golfvöllur Ítalíu. Um er að ræða 18 holu völl, par 71, og um 5.800–6.000 metra langur af gulum teigum.
Acquasanta er ekkert sérstaklega langur miðað við nútímavelli, en samt tæknilega krefjandi vegna mjórra brauta, hæðarmunar, blindra högga og lítilla, vel varinna flata. Mikið er af háum furutrjám, sýprustrjám og öðrum Miðjarðarhafsgróðri, sem gefur vellinum mjög sérstakt og fágað svipbragð.
Hápunktar eru meðal annars 7. holan, par 5 með útsýni að fornu rómversku vatnsveitunum, 11. holan, stutt en nákvæm par 3, og hin glæsilega 17. hola þar sem vatn gerir teighögg og annað högg sérstaklega spennandi. 18. holan er síðan upp í móti með glæsilegu útsýni að klúbbhúsinu.
Í stuttu máli, Acquasanta er ekki völlurinn sem maður fer á til að fá nútímalega „championship“ upplifun, heldur til að spila skemmtilegan og krefjandi golfvöll í einstaklega fallegu og sögulegu umhverfi.
Acquasanta er með nokkurn fjölda golfbíla en fyrir þá sem það hafa í hyggju, þá væri ráðlegt að bóka þá með góðum fyrirvara. Fararstjórar munu aðstoða áhugasama með það. Kostnaðurinn við hvern golfbíl er 50 - 60 EUR og greitt er fyrir þá á staðnum.
Fyrstu ráshóparnir munu geta haldið heim á hótel þegar þeir vilja að hring loknum, en ráðlegt er fyrir golfara að festa æskilegan heimferðartímann með nokkrum fyrirvara í samráði við fararstjóra.
Dagur 7.
Lokaáskorun, golfmót á Marco Simone
Það verður spennandi dagur framundan. Golfarar munu fá annað tækifæri til að spila hinn magnaða Ryder cup völl Marco Simone, og í þetta sinn í mótsumgjörð. Vallarstjórar Marco Simone munu halda utan um mótið ásamt golfstjóranum okkar Hauki Gíslasyni.
Við munum öll halda saman á völlinn í 6- 8 manna bílum og gera okkur klár í rólegheitunum.
Fyrsti fjögurra manna hópurinn verður ræstur út klukkan 10:20 og síðan mun hver hópur fylgja í kjölfarið með tíu mínútna millibili.
Þegar hver hópur hefur klárað sinn hring þá munum við geta slakað á saman í klúbbúsinu, þar til allir hópar hafa klárað, og stigin verið talin.
Eftir verðlaunaafhendingu höldum við heim á hótelið þar sem ferðalangar geta gert sig kláran fyrir síðasta kvöldið sitt í Róm.




Dagur 8.
Ferðadagur
Eftir morgunverð, mun ferðalöngum gefast smá tími til að rölta um og mögulega kíkja í verslanir í hverfinu en klukkan 11:55 (tékk out er til 12:00)þurfa að allir að vera búnir að tékka út og gera upp við hótelið, því þá höldum við saman til Fiumicino flugvallarins í 6 - 8 manna skutlum.
Flugvöllurinn er í innan við 35 mínútna akstri frá hótelinu.
Brottför heim er áætluð kl. 15:45.

Innifalið í verði:
Verð ferðar er 459.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 90.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri ásamt innrituðu gólfsetti Transfer til og frá flugvellinum í Róm Morgunverður á hótelum alla daga. 7 nætur á 4 stjörnu spa hóteli rétt við Vatíkanið Akstur til og frá hóteli, í litlum 6 - 8 manna bílum, á alla gólfvelli samkvæmt ferðalýsingu. Green fee á alla þá fimm 18 holu hringi sem taldir eru upp í ferðalýsingu. Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði, víni og vatni. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, spa þjónusta á hóteli, gólfbílar og önnur þjónusta sem gólfarar velja sér sjálfir. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 6 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.


