

Dagur 1.


Ferðadagur
Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:25.
Frá flugvellinum í Róm höldum við beint á fjögurra stjörnu Spa hótelið sem bíður okkar í hlíðum Sibillini þjóðgarðsins í Marche. Ferðin þangað mun taka um 3.5 klst. með stuttu stoppi. Fararstjórar munu fylgja hópnum í rútuna, sem bíður eftir okkur á á flugvellinum.
Leiðin til hótelsins er falleg og fjölbreytt og stutt stopp verður gert á leiðinni. Eftir komu á hótelið, munu gestir fá afhenda lykla að herbergjunum og í framhaldi getað slakað á í fallegu umhverfi.
Mjög góður veitingastaður er á hótelinu.
Kvöldverður á hótelinu (án drykkja) er innifalinn.
Dagur 2.
Hjólað um sveitir Marche. Vín- og matarframleiðendur heimsóttir
Við munum leggja af stað frá hótelinu eftir morgunverð, eða kl. 9:00 og halda saman í hjólreiðatúr um vín- og matarhéraðið Marche, áleiðis til Matelica, þar sem vínþrúgan Verdicchio er hvað helst ræktuð. Við munum ferðast um ægifagrar sveitir Sibbillini þjóðgarðsins með reglulegum stoppum.
Á leiðinni munum við koma við hjá einhverjum af þeim fjölmörgu framleiðendum á matvælum (m.a. hunangi og ostum) sem eru í héraðinu, en Marche er ein af helstu matarkistum Ítalíu og þar framleiða, oftast litlir fjölskyldureknir framleiðendur, kynstrin öll af einstökum matvörum.
VIð munum einnig gefa okkur tíma til að koma við hjá vínframleiðanda á leiðinni til að kynnast betur Verdicchio vínunum.
Um hádegisbilið munum við svo borða hádegismat á sveitabýli sem framleiðir dæmigerðar afurðir úr héraðinu.
Í hjólaferðinni munum við fræðast um héraðið Marche og sögu þess, en í leiðinni kynnast fólkinu sem byggir og yrkir sveitina og framleiðir mikið af besta hráefni sem Ítalía hefur upp á að bjóða.
Eftir hádegisverðin munum við hjóla tilbaka heim á hótelið en þeir sem vilja stendur líka til boða að fara heim í rútu.
Hádegisverður með drykkjum er innifalinn.
Vegalengd sem hjóluð er: Um 30 km.
Erfiðleikastig: Miðlungs.
Hækkun: 150 m.
RCA trygging innifalin í hjólaferðum.
Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.



Dagur 3.
Hjólað til Assisi


Við munum vakna í morgunmat snemma og leggja af stað á hjólunum kl. 08:00 til pílagrímabæjarins Assisi í Umbria, sem er frægur fyrir að vera fæðingastaður heilags Fransis, ásamt því að vera alveg einstaklega fallegur miðaldabær.
Við gerum ráð fyrir að koma til Assisi um kl. 12:00 og þá munum við fara saman í stutta skoðunarferð um bæinn. Í framhaldi verður frjáls tími fyrir fólk til að skoða sig um, fá sér hádegismat af einhverjum af hinum góðu veitingastöðum þar og eða versla.
Um kl. 15:00 munum við svo safnast saman á fyrirfram ákveðnum stað og halda saman til Dómkirkju heilags Fransis. Kirkjan er í gotneskum stíl og á margan hátt algjörlega einstök, verandi skreytt freskum eftir Giotto og Cimabue. Fólki gefst þar tími til að heimsækja grafhýsi heilags Fransis og taka myndir.
Um klukkan 16:00 mun rúta svo flytja okkur tilbaka á hótelið okkar í Marche.
Kvöldverður á hótelinu (án drykkja) er innifalinn um kvöldið.
Vegalengd sem hjóluð er: um 60 km.
Erfiðleikastig: Miðlungs.
Hækkun: 150 m.
RCA trygging innifalin í hjólaferðum.
Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

Dagur 4.
Spa dagur og hádegisverður uppi í fjöllum Sibillini
Eftir morgunverð er frjáls tími en innifalið þann dag verður fullt aðgengi að spa svæði hótelsins, inni- og útisvæði, sólbekkjum og sundlaug.
Upp úr hádegi ökum við svo stuttan spöl til veitingastaðar uppi í hæðum Sibillini þjóðgarðsins, þar sem við munum njóta langs hádegisverðar á ítalska vísu.
Eftir hádegisverð verður frjáls tími en spa svæði hótelsins mun áfram verða aðgengilegt fyrir þá sem vilja til klukkan átta.
Hádegisverður með drykkjum er innifalinn.



Dagur 5.
Hjólað um Monte Conero


Við munum vakna snemma í morgunverð og klukkan 8:00 mun rúta flytja okkur til einnar af fegurstu ströndum Adríahafsins við Monte Conero. Við förum á hjólin í við Numana. og munum hjóla um þetta guðdómlega svæði fram að hádegi.
Klukkan 13:00 verðum við komin til vínframleiðanda þar sem okkur mun gefast kostur á því að fara í vínsmökkun og í framhaldi borða þar hádegismat.
Klukkan 15:00 mun rútan flytja okkur tilbaka heim á hótelið, og eftir að við komum þangað, eða um kl. 16:00 er frjáls tími.
Vínsmökkun og hádegismatur er innifalið.
Vegalengd sem hjóluð er: um 34 km.
Erfiðleikastig: Miðlungs.
Hækkun: 3-400 m.
RCA trygging innifalin í hjólaferðum.
Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

Dagur 6.
Haldið til Rómar!
Eftir morgunverð kveðjum við Marche og höldum til Rómar. Áætlaður komutími þangað er um kl. 13.30.
Árið 2025 er hið heilaga ár í Róm skv. kaþólskri kirkju. Rómarborg mun skarta sínum fegursta skrúða þetta árið og því einstakt tækifæri til að upplifa borgina eilífu á þessum tíma, sem gerist aðeins á tuttugu og fimm ára fresti.
Eftir að hafa komið töskunum okkar fyrir á hótelinu mun fólk hafa frjálsan tíma til að njóta þess sem þessi fallega borg hefur upp á að bjóða.
Hér fyrir neðan er hlekkur á hótelið okkar í Róm, Mama Shelter, sem er glæsilegt og mjög vinsælt 4 stjörnu hótel með nokkrum veitingastöðum, Spa aðstöðu, þakbar og mjög skemmtilegu útisvæði.


Dagur 7.
Skoðunarferð um Róm & ítalskur hádegisverður við Vatíkanið

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar og farið yfir magnaða sögu hennar.
Skoðunarferðin mun enda á Campo di Fiori um kl. 12:30
Við munum svo hittast um 14:00 í síðbúnum hádegisverði á veitingastað í nágrenni við Péturskirkjuna og njóta þar saman dýrindis veiga á rómverska vísu.
Eftir matinn verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.
Skoðunarferð og hádegismatur með drykkjum er innifalið.

.jpg)
Dagur 8.
Ferðadagur
Eftir morgunverð, munum við tékka út af hótelinu og halda af stað áleiðis til Fiumicino-flugvallarins, en þangað er aðeins um 25 mínútna akstur. Við munum ekki þurfa að yfirgefa herbergin okkar fyrr en kl. 12:00
Brottför heim er áætluð kl. 15:45.

Innifalið í verði:
Verð ferðar er 369.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 55.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður á hótelum alla daga. 5 nætur á 4 stjörnu Spa hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche. 2 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli í nágrenni Vatíkansins í Róm. Tveir kvöldverðir á glæsilegum veitingastað hótelsins í Marche (án drykkja). Dagur á Spa svæði hótelsins í Marche, og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins. Hjólaferð um sveitir Marche. Vín og afurðir úr héraði smakkaðar og hádegisverður. Hjólaferð til Assisi í Umbria, fæðingarbæjar heilags Fransis, verndara Ítalíu. Hjólaferð um Monte-Conero svæðið ásamt vínsmökkun og hádegisverði. Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, aðgangur að Spa svæði hótelsins þá daga sem ferðir eru í boði, strandabekkir í Numana og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 5 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.
