top of page
Njóttu þín í hjarta Ítalíu!
basilica-in-assisi-umbria-italy-2023-11-27-04-59-28-utc_edited_edited.jpg

Upplifun, dekur & menning í Marche, Umbria & Róm

3. - 10. júní 2026

  Takmarkaður sætafjöldi. 

Screenshot 2025-11-04 at 21.09.45.png

Ferðin er skipulögð í samstarfi við ferðaskrifstofuna 500 Viaggi s.r.l. 

500 viaggio.jpg
beautiful-castle-in-spoleto-umbria-in-italy-2023-11-27-04-50-53-utc.jpg
_TER0986.jpg

Dagur 1.

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:25.

​

Frá flugvellinum í Róm höldum við beint á fjögurra stjörnu Spa hótelið sem bíður okkar í hlíðum Sibillini þjóðgarðsins í Marche. Ferðin þangað mun taka um 3.5 klst. með stuttu stoppi. Fararstjórar munu fylgja hópnum í rútuna, sem bíður eftir okkur á á flugvellinum.

​

Leiðin þangað er falleg og fjölbreytt og stutt stopp verður gert á leiðinni. Eftir komu á hótelið, munu gestir fá afhenda lykla að herbergjunum og í framhaldi getað slakað á í fallegu umhverfi.

​​

Eftir að allir eru búnir að koma sér fyrir þá munum við hittast í kvöldverð á veitingastað hótelsins til að kynnast aðeins og fara yfir næstu daga. ​

​

Mjög góður veitingastaður er á hótelinu.

​

Um kvöldið verður boðið upp á  3ja rétta kvöldverð, fyrir utan drykki, á veitingastað hótelsins sem er innifalinn. 

Dagur 2.

Spa dagur og hádegisverður uppi í fjöllum Sibillini

Eftir morgunverð er frjáls tími en innifalið þann dag verður fullt aðgengi að spa svæði hótelsins, inni- og útisvæði, sólbekkjum og sundlaug.

​

Upp úr hádegi ökum við svo stuttan spöl til veitingastaðar uppi í hæðum Sibillini þjóðgarðsins, þar sem við munum njóta hádegisverðar á ítalska vísu.

​

Eftir hádegisverð verður frjáls tími en spa svæði hótelsins mun áfram verða aðgengilegt fyrir þá sem vilja.

_TER1657.jpg
IMG_1478.jpeg

Dagur 3.

san-marino-medieval-tower-on-a-rocky-cliff-and-pa-2023-11-27-05-27-16-utc.jpg

Fríríkið San Marino

Eftir morgunverð verður haldið til fríríkissins San Marino sem stendur á tindi fjallsins Titano.

 

Stutt skoðunarferð verður í boði um helstu kennileiti en frjáls tími mun gefast til að versla og snæða hádegisverð eins og hentar.

​

Á heimleiðinni verður farið í vínsmökkun. Þar mun okkur gefast tækifæri til að bragða á nokkrum af helstu vínum Marche - héraðsins eins og hvítvíninu Verdicchio og rauðvíninu Rosso Conero.

San marino torg flött_edited.jpg
IMG_1523_edited.jpg

Dagur 4.

Skoðunarferð til miðaldabæjanna Assisi & Gubbio

Eftir morgunverð munum við halda til bæjarins Assisi

sem er frægur fyrir að vera fæðingastaður heilags Fransis.

 

Assisi er í um 50 mínútna akstri frá Borgo Lanciano og þar munum við fara saman í stutta skoðunarferð um bæinn og í framhaldi verður frjáls tími fyrir fólk til að skoða sig um.

 

Eftir frjálsa tímann munum við sameinast á ný og halda saman til Dómkirkju heilags Fransis. Kirkjan er í gotneskum stíl og á margan hátt algjörlega einstök, auk þess að vera skreytt freskum eftir Giotto og Cimabue.

​

Um klukkan 15:00 leggjum við svo af stað áleiðis til Gubbio, sem er miðaldabær í Umbria, í hæðum fjallsins Ingino.

 

Bærinn er rómaður fyrir einstaka byggingarlist, mikilvægar fornleifar og hina árlegu miðaldarhátíð La corsa dei ceri.

 

Við munum fara upp á tind Ingino með kláfi og njóta einstaks útsýnis yfir fagrar sveitir Umbria. 

basilica-in-assisi-umbria-italy-2023-11-
Guidað í Gubbio_edited.jpg

Dagur 5.

Conero spiaggia.jpg
Spiaggia Eugenio.jpg

Strandaferð til Adríahafsins

Eftir morgunverð er ferðinni heitið til einnar af fegurstu ströndum Adríahafsins við bæina Sirolo & Numana.

 

Deginum verður varið á ströndinni, sem er í rétt rúman klukkustunda akstur frá hótelinu. 

​

Eftir ströndina verður boðið upp á vín og ólívuolíusmökkun í einni helstu sælkerabúð svæðisins.​. Rútan mun svo sækja hópinn þangað og flytja okkur á hótelið. 

​

Um kvöldið verður boðið upp á  3ja rétta kvöldverð, fyrir utan drykki, á veitingastað hótelsins sem er innifalinn. 

Dagur 6.

Haldið til Rómar!

Eftir morgunverð kveðjum við Marche og höldum til Rómar. Áætlaður komutími þangað er um kl. 13.30.

​

Árið 2025 er hið heilaga ár í Róm skv. kaþólskri kirkju. Rómarborg mun skarta sínum fegursta skrúða þetta árið og því einstakt tækifæri til að upplifa borgina eilífu á þessum tíma, sem gerist aðeins á tuttugu og fimm ára fresti.

​

Eftir að hafa komið töskunum okkar fyrir á hótelinu mun fólk hafa frjálsan tíma til að njóta þess sem þessi fallega borg hefur upp á að bjóða.

​

Hér fyrir neðan er hlekkur á hótelið okkar í Róm, Mama Shelter, sem er glæsilegt og mjög vinsælt 4 stjörnu hótel með nokkrum veitingastöðum, Spa aðstöðu, þakbar og mjög skemmtilegu útisvæði.​​

spanish steps II.jpg
IMG_3964_edited.jpg

Dagur 7.

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg

Skoðunarferð um Róm & ítalskur hádegisverður við Vatíkanið

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar.

​

Skoðunarferðinni lýkur í sameiginlegum hádegisverði á veitingastað í nágrenni við Péturskirkjuna. Þar munum við njóta saman dýrindis veiga á rómverska vísu.

​

Í framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

Pantheon II.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg

Dagur 8.

Ferðadagur

Ferðadagur. Eftir morgunverð, er frjáls tími, en rútan mun leggja af stað frá hótelinu ekki seinna en kl. 12:00 á hádegi.

​

Við höldum síðan af stað áleiðis til Fiumicino-flugvallarins, en þangað er aðeins um 30 - 40 mínútna akstur.

​

Brottför heim er áætluð kl. 15:45.

rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 339.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 57 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður alla daga. 5 nætur á 4 stjörnu Spa hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche. Tveir kvöldverðir á glæsilegum veitingastað hótelsins í Marche (án drykkja). 2 nætur á 4 stjörnu hóteli í nágrenni Vatikansins Róm Dagur á Spa svæði hótelsins í Marche, og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins. Skoðunarferð til fríríkissins San Marino & vínsmökkun á vínekru skammt frá hótelinu. Skoðunarferð til Assisi, fæðingarbæjar heilags Fransis, verndara Ítalíu. Skoðunarferð til Gubbio í Umbria Strandarferð til Numana við Conero - ströndina, ásamt vín og ólívuolíusmökkun. Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, aðgangur að Spa svæði hótelsins þá daga sem ferðir eru í boði, strandabekkir í Numana og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 6 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Skráðu þig á forgangslista fyrir ferðina hér!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

Initalia

bottom of page