top of page
two-young-friends-in-a-meadow-with-mountain-bikes-2025-03-05-02-49-36-utc.jpg
Hjólað um hjarta Ítalíu

Rafhjólað um Marche & Umbría
Gengið um Róm

17. - 24. september 2026

  Takmarkaður sætafjöldi  

Screenshot 2025-10-18 at 18.17.39.png

Verð 389.000 m.v. tvo í herbergi

Ferðin er skipulögð í samstarfi við Ítalska hjólreiðasambandið.

download-1.png
500 viaggio.jpg

Dagur 1.

beautiful-castle-in-spoleto-umbria-in-italy-2023-11-27-04-50-53-utc.jpg
_TER0986.jpg

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 07:50 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:25.

​

Frá flugvellinum í Róm höldum við beint á fjögurra stjörnu Spa hótelið sem bíður okkar í hlíðum Sibillini þjóðgarðsins í Marche. Ferðin þangað mun taka um 3.5 klst. með stuttu stoppi. Fararstjórar munu fylgja hópnum í rútuna, sem bíður eftir okkur á á flugvellinum.

​

Leiðin til hótelsins er falleg og fjölbreytt og stutt stopp verður gert á leiðinni. Eftir komu á hótelið, munu gestir fá afhenda lykla að herbergjunum og í framhaldi getað slakað á í fallegu umhverfi.

​

Mjög góður veitingastaður er á hótelinu.

​

Kvöldverður á hótelinu (án drykkja) er innifalinn.

Dagur 2.

Hjólað til Assisi

Við munum vakna í morgunmat snemma og  leggja af stað á hjólunum kl. 08:00 til pílagrímabæjarins Assisi í Umbria, sem er frægur fyrir að vera fæðingastaður heilags Fransis, ásamt því að vera alveg einstaklega fallegur miðaldabær.

 

Við gerum ráð fyrir að koma til  Assisi um kl. 12:00 og þá munum við fara saman í stutta skoðunarferð um bæinn. Í framhaldi verður frjáls tími fyrir fólk til að skoða sig um, fá sér hádegismat af einhverjum af hinum góðu veitingastöðum þar og eða versla. 

​

Um kl. 15:00 munum við svo safnast saman á fyrirfram ákveðnum stað og halda saman til Dómkirkju heilags Fransis. Kirkjan er í gotneskum stíl og á margan hátt algjörlega einstök, verandi skreytt freskum eftir Giotto og Cimabue. Fólki gefst þar tími til að heimsækja grafhýsi heilags Fransis og taka myndir. 

 

Um klukkan 16:00 mun rúta svo flytja okkur tilbaka á hótelið okkar í Marche.

​

Kvöldverður á hótelinu (án drykkja) er innifalinn um kvöldið.

​

Vegalengd sem hjóluð er: um 60 km.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 350 m.

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

​

​

basilica-in-assisi-umbria-italy-2023-11-
cyclist-on-mountain-bike-races-downhill-in-the-nat-2025-01-16-22-22-12-utc.jpg
Assisi vegurinn að_edited.png

Dagur 3.

Hjólað um Monte Conero

silhouetted-view-of-male-mountain-biker-
Conero spiaggia.jpg

Við munum vakna snemma í morgunverð og klukkan 8:00 mun rúta flytja okkur til einnar af fegurstu ströndum Adríahafsins við Monte Conero. Við förum á hjólin í Numana. og  munum hjóla um þetta guðdómlega svæði  fram að hádegi. 

​

Klukkan 13:00 verðum við komin til vínframleiðanda þar sem okkur mun gefast kostur á því að fara í vínsmökkun og í framhaldi borða þar hádegismat.

​

Klukkan 15:00 mun rútan flytja okkur tilbaka heim á hótelið, og eftir að við komum þangað, eða um kl. 16:00 er frjáls tími.

​​

​Vínsmökkun og hádegismatur er innifalið. 

​

Vegalengd sem hjóluð er: um 34 km.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 3-400 m.

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

​​

​

​

Par að hjóla í marche.jpg

Dagur 4.

Hjólað um sveitir Marche. Vín- og matarframleiðendur heimsóttir 

Við munum leggja af stað frá hótelinu eftir morgunverð, eða kl. 9:00 og halda saman í hjólreiðatúr um vín- og matarhéraðið Marche, áleiðis til Matelica, þar sem vínþrúgan Verdicchio er hvað helst ræktuð.  Við munum ferðast um ægifagrar sveitir Sibbillini þjóðgarðsins með reglulegum stoppum. 

​

Á leiðinni munum við koma við hjá einhverjum af þeim fjölmörgu framleiðendum á matvælum (m.a. hunangi og ostum) sem eru í héraðinu, en Marche er ein af helstu matarkistum Ítalíu og þar framleiða, oftast litlir fjölskyldureknir framleiðendur, kynstrin öll af einstökum matvörum. 

​

VIð munum einnig gefa okkur tíma til að koma við hjá vínframleiðanda á leiðinni til að kynnast betur Verdicchio vínunum.

 

Um hádegisbilið munum við svo borða hádegismat á sveitabýli sem framleiðir dæmigerðar afurðir úr héraðinu. 

​

Í hjólaferðinni munum við fræðast um héraðið Marche og sögu þess, en í leiðinni kynnast fólkinu sem byggir og yrkir sveitina og framleiðir mikið af besta hráefni sem Ítalía hefur upp á að bjóða. 

​​

Eftir hádegisverðin munum við hjóla tilbaka heim á hótelið en þeir sem vilja stendur líka til boða að fara heim í rútu.​​

​

​Hádegisverður með drykkjum er innifalinn.

​​

Vegalengd sem hjóluð er: Um 40 km.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 350 m.

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

young-smiling-bikers-man-and-woman-in-professional-2025-01-16-22-37-54-utc.jpg
IMG_3267.jpg
two-young-friends-in-a-meadow-with-mountain-bikes-2025-03-05-02-49-36-utc.jpg
_TER1657.jpg
IMG_1464.jpeg

Dagur 5.

Spa dagur og hádegisverður uppi í fjöllum Sibillini

Eftir morgunverð er frjáls tími en innifalið þann dag verður fullt aðgengi að spa svæði hótelsins, inni- og útisvæði, sólbekkjum og sundlaug.​

 

Upp úr hádegi ökum við svo stuttan spöl til veitingastaðar uppi í hæðum Sibillini þjóðgarðsins, þar sem við munum njóta langs hádegisverðar á ítalska vísu.

​

Eftir hádegisverð verður frjáls tími en spa svæði hótelsins mun áfram verða aðgengilegt fyrir þá sem vilja til klukkan átta.

​

Hádegisverður með drykkjum er innifalinn.

hairs-and-a-table-for-guests-decorated-with-candl-2025-01-09-05-18-31-utc.jpg

Dagur 6.

Haldið til Rómar!

Eftir morgunverð kveðjum við Marche og höldum til Rómar. Áætlaður komutími þangað er um kl. 13.30.

​

Árið 2025 er hið heilaga ár í Róm skv. kaþólskri kirkju. Rómarborg mun skarta sínum fegursta skrúða þetta árið og því einstakt tækifæri til að upplifa borgina eilífu á þessum tíma, sem gerist aðeins á tuttugu og fimm ára fresti.

​

Eftir að hafa komið töskunum okkar fyrir á hótelinu mun fólk hafa frjálsan tíma til að njóta þess sem þessi fallega borg hefur upp á að bjóða.

​

Hér fyrir neðan er hlekkur á hótelið okkar í Róm, Mama Shelter, sem er glæsilegt og mjög vinsælt 4 stjörnu hótel með nokkrum veitingastöðum, Spa aðstöðu, þakbar og mjög skemmtilegu útisvæði.​​

spanish steps II.jpg
Pantheon II.jpg

Dagur 7.

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg

Skoðunarferð um Róm & ítalskur hádegisverður við Vatíkanið

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar og farið yfir magnaða sögu hennar. 

​

Skoðunarferðin mun enda á Campo di Fiori um kl. 12:30

 

Við munum svo hittast um 14:00 í síðbúnum hádegisverði á veitingastað í nágrenni við Péturskirkjuna og njóta þar saman dýrindis veiga á rómverska vísu.

​

Eftir matinn verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

​

Skoðunarferð og hádegismatur með drykkjum er innifalið.

IMG_3964_edited.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg

Dagur 8.

Ferðadagur

Eftir morgunverð, munum við tékka út af hótelinu og halda af stað áleiðis til Fiumicino-flugvallarins, en þangað er aðeins um 25 mínútna akstur.  Við munum ekki þurfa að yfirgefa herbergin okkar fyrr en kl. 12:00

​​​

Brottför heim er áætluð kl. 15:45.

rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 389.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 60.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður á hótelum alla daga. 5 nætur á 4 stjörnu Spa hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche. 2 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli í nágrenni Vatíkansins í Róm. Tveir kvöldverðir á glæsilegum veitingastað hótelsins í Marche (án drykkja). Dagur á Spa svæði hótelsins í Marche, og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins. Hjólaferð um sveitir Marche. Vín og afurðir úr héraði smakkaðar og hádegisverður. Hjólaferð til Assisi í Umbria, fæðingarbæjar heilags Fransis, verndara Ítalíu. Hjólaferð um Monte-Conero svæðið ásamt vínsmökkun og hádegisverði. Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, aðgangur að Spa svæði hótelsins þá daga sem ferðir eru í boði, strandabekkir í Numana og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 5 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

2025-001.jpg

Initalia

bottom of page