top of page
two-young-friends-in-a-meadow-with-mountain-bikes-2025-03-05-02-49-36-utc.jpg
Hjólað um hjarta Ítalíu

Rafhjólað um Marche & Umbría
Gengið um Róm

10. - 17. júlí 2026

  Takmarkaður sætafjöldi. 

Screenshot 2025-10-19 at 19.21.06.png

Verð 389.000 m.v. tvo í herbergi

Ferðin er skipulögð í samstarfi við Ítalska hjólreiðasambandið.

download-1.png
500 viaggio.jpg

Dagur 1.

Screenshot 2025-10-19 at 18.08.24.png
Screenshot 2025-06-29 at 17.29.41.png

Ferðadagur

Brottför í beinu flugi með Icelandair kl. 08:20 með áætlaða lendingu í Róm kl. 14:00. Við söfnumst saman á flugvellinum og höldum saman þangað sem að 6-7 manna bílar bíða eftir að taka okkur beint á glæsilega fjögurra stjörnu hótelið okkar í Róm, ekki langt frá Vatíkaninu, þar sem við munum dvela næstu tvær nætur. 

​

Eftir komu á hótelið, fá gestir afhent herbergin sín og  í framhaldi er frjáls tími þar sem ferðalangar geta slakað á á hótelinu, sem er með spa aðstöðu, eða haldið út í borgina til að upplifa töfra Rómar.

​​

​

 

.

the-pantheon-temple-in-rome-with-a-historical-foun-2025-02-02-11-45-43-utc.jpg

Dagur 2.

Skoðunarferð um Róm & ítalskur hádegisverður við Vatíkanið

Eftir morgunverð verður boðið upp á skoðunarferð með fararstjórum um mörg af þekktustu kennileitum Rómarborgar.

​

Skoðunarferðinni lýkur í sameiginlegum hádegisverði á veitingastað í nágrenni við Péturskirkjuna. Þar munum við njóta saman dýrindis veiga á rómverska vísu.

​

Í framhaldi verður frjáls tími til að njóta eftirmiðdagsins og kvöldsins í þessari yndislegu borg.

colosseum-at-sunrise-in-rome-2024-10-11-05-36-10-utc.jpg
rome-italy-man-training-on-kayak-near-aelian-bri-2023-11-27-05-27-22-utc (1).jpg
spanish steps II.jpg

Dagur 3.

Haldið til hótelsins okkar í Marche

_TER0986.jpg

Eftir morgunverð höldum við beint á fjögurra stjörnu Spa hótelið sem bíður okkar í hlíðum Sibillini þjóðgarðsins í Marche, þar sem við munum dvelja næstu fimm næturnar.

 

Ferðin þangað mun taka um 4 klst., (stutt stopp verður gert á leiðinni. til að fara á salerni og/eða kaupa sér vatn, drykki o.fl. til að hafa á herbergjunum ef fólk vill.), en leiðin þangað er falleg og fjölbreytt.

 

Eftir komu á hótelið, munu gestir fá afhenda lykla að herbergjunum og í framhaldi er frjáls tími. 

​​

Innifalið þennan dag er aðgengi að spa svæði hótelsins, það sem eftirlifir af deginum, þar sem fólk getur slakað á og notið eftirmiðdagsins í ægifögru umhverfinu. ​

​​​

Um kvöldið verður boðið upp á  3ja rétta kvöldverð, fyrir utan drykki, á veitingastað hótelsins sem er innifalinn. 

_A7R0748.jpg
_TER1657.jpg

Dagur 4.

ASSISI-PANORAMICA-2000x1333-1200x800.jpg
young-smiling-bikers-man-and-woman-in-professional-2025-01-16-22-37-54-utc.jpg
basilica-in-assisi-umbria-italy-2023-11-27-04-59-28-utc_edited_edited.jpg

Hjólað til Assisi

Við munum vakna í morgunmat snemma og  leggja af stað á hjólunum kl. 08:00 til pílagrímabæjarins Assisi í Umbria, sem er frægur fyrir að vera fæðingastaður heilags Fransis, ásamt því að vera alveg einstaklega fallegur miðaldabær.

 

Við gerum ráð fyrir að koma til  Assisi um kl. 12:00 og þá munum við fara saman í stutta skoðunarferð um bæinn. Í framhaldi verður frjáls tími fyrir fólk til að skoða sig um, fá sér hádegismat af einhverjum af hinum góðu veitingastöðum þar og eða versla. 

​

Um kl. 15:00 munum við svo safnast saman á fyrirfram ákveðnum stað og halda saman til Dómkirkju heilags Fransis. Kirkjan er í gotneskum stíl og á margan hátt algjörlega einstök, verandi skreytt freskum eftir Giotto og Cimabue. Fólki gefst þar tími til að heimsækja grafhýsi heilags Fransis og taka myndir. 

 

Um klukkan 16:00 mun rúta svo flytja okkur tilbaka á hótelið okkar í Marche.

​

Kvöldverður á hótelinu (án drykkja) er innifalinn um kvöldið.

​

Vegalengd sem hjóluð er: um 50 km.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 350 m.

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

​

​

Dagur 5.

Hjólað um Monte Conero

silhouetted-view-of-male-mountain-biker-on-coastal-2024-10-21-21-38-32-utc_edited.jpg
Conero spiaggia.jpg
Par að hjóla í marche.jpg

Við munum vakna snemma í morgunverð og klukkan 8:00 mun rúta flytja okkur til einnar af fegurstu ströndum Adríahafsins við Monte Conero. Við förum á hjólin í við Numana. og  munum hjóla um þetta guðdómlega svæði  fram að hádegi. 

​

Klukkan 13:00 verðum við komin til vínframleiðanda þar sem okkur mun gefast kostur á því að fara í vínsmökkun og í framhaldi borða þar hádegismat.

​

Klukkan 15:00 mun rútan flytja okkur tilbaka heim á hótelið, og eftir að við komum þangað, eða um kl. 16:00 er frjáls tími.

​​

​Vínsmökkun og hádegismatur er innifalið. 

​

Vegalengd sem hjóluð er: um 34 km.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 3-400 m.

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

​​

​

​

Dagur 6.

Hjólað um sveitir Marche. Vín- og matarframleiðendur heimsóttir 

Við munum leggja af stað frá hótelinu eftir morgunverð, eða kl. 9:00 og halda saman í hjólreiðatúr um vín- og matarhéraðið Marche, áleiðis til Matelica, þar sem vínþrúgan Verdicchio er hvað helst ræktuð.  Við munum ferðast um ægifagrar sveitir Sibbillini þjóðgarðsins með reglulegum stoppum. 

​

Á leiðinni munum við koma við hjá einhverjum af þeim fjölmörgu framleiðendum á matvælum (m.a. hunangi og ostum) sem eru í héraðinu, en Marche er ein af helstu matarkistum Ítalíu og þar framleiða, oftast litlir fjölskyldureknir framleiðendur, kynstrin öll af einstökum matvörum. 

​

VIð munum einnig gefa okkur tíma til að koma við hjá vínframleiðanda á leiðinni til að kynnast betur Verdicchio vínunum.

 

Um hádegisbilið munum við svo borða hádegismat á sveitabýli sem framleiðir dæmigerðar afurðir úr héraðinu. 

​

Í hjólaferðinni munum við fræðast um héraðið Marche og sögu þess, en í leiðinni kynnast fólkinu sem byggir og yrkir sveitina og framleiðir mikið af besta hráefni sem Ítalía hefur upp á að bjóða. 

​​

Eftir hádegisverðin munum við hjóla tilbaka heim á hótelið en þeir sem vilja stendur líka til boða að fara heim í rútu.​​

​

​Hádegisverður með drykkjum er innifalinn.

​​

Vegalengd sem hjóluð er: Um 40 km.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Hækkun: 350 m.

RCA trygging innifalin í hjólaferðum.

Tegund hjóla: MTB Front rafmagnshjól eða sambærilegt.

two-young-friends-in-a-meadow-with-mountain-bikes-2025-03-05-02-49-36-utc.jpg
IMG_0354.jpeg
IMG_3267.jpg

Dagur 7.

Spa dagur og hádegisverður uppi í fjöllum Sibillini

_A7R0748.jpg

Eftir morgunverð er frjáls tími en innifalið þann dag verður fullt aðgengi að spa svæði hótelsins, inni- og útisvæði, sólbekkjum og sundlaug.​

 

Upp úr hádegi ökum við svo stuttan spöl til veitingastaðar uppi í hæðum Sibillini þjóðgarðsins, þar sem við munum njóta langs hádegisverðar á ítalska vísu.

​

Eftir hádegisverð verður frjáls tími en spa svæði hótelsins mun áfram verða aðgengilegt fyrir þá sem vilja til klukkan átta.

​

Hádegisverður með drykkjum er innifalinn.

IMG_1464.jpeg
hairs-and-a-table-for-guests-decorated-with-candl-2025-01-09-05-18-31-utc.jpg

Dagur 8.

Ferðadagur

Eftir morgunverð, munum við tékka út af hótelinu og halda af stað áleiðis til Fiumicino-flugvallarins, en þangað er aðeins um 4 klst. akstur.  Stoppað verður á leiðinni til að hægt verði að fara á salerni eða kaupa sér eitthvað að borða. ​​

​

Brottför heim er áætluð kl. 15:45.

rome-and-vatican-city-viewed-from-an-airplane-rom-2025-01-27-17-44-56-utc.jpg

Innifalið í verði:

Verð ferðar er 389.000 þús á mann. m.v. 2 í herbergi. Fyrir þá sem vilja vera í sér herbergi bætast 55.000 þúsund krónur við. Innifalið: Beint flug með Icelandair til Rómar ásamt 23 kg. tösku og 10 kg. handfarangri. Rútuferðir skv. ferðalýsingu. Morgunverður á hótelum alla daga. 5 nætur á 4 stjörnu Spa hóteli í þjóðgarðinum Sibillini í Marche. 2 nætur á glæsilegu 4 stjörnu hóteli í nágrenni Vatíkansins í Róm. Tveir kvöldverðir á glæsilegum veitingastað hótelsins í Marche (án drykkja). Dagur á Spa svæði hótelsins í Marche, og langur hádegisverður uppi í hæðum þjóðgarðsins. Hjólaferð um sveitir Marche. Vín og afurðir úr héraði smakkaðar og hádegisverður. Hjólaferð til Assisi í Umbria, fæðingarbæjar heilags Fransis, verndara Ítalíu. Hjólaferð um Monte-Conero svæðið ásamt vínsmökkun og hádegisverði. Skoðunarferð um helstu kennileiti Rómar ásamt hádegisverði í nágrenni við Vatíkanið. Íslensk fararstjórn. Takmarkaður fjöldi þáttakenda. Lágmarks fjöldi þátttakenda í ferð er 20 manns. Ekki innfalið: Aðangur að söfnum, gistináttaskattur sem greiddur er á hóteli, aðgangur að Spa svæði hótelsins þá daga sem ferðir eru í boði, strandabekkir í Numana og annað sem ekki er tekið fram að sé innifalið. Annað: Staðfestingargjald er 60.000 kr. og er óafturkræft nema að ferðinni verði aflýst. Lokagreiðsla þarf að berast fyrir 5 vikum fyrir brottför. Ferðaskrifstofan / fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjánlegar aðstæður gefa tilefni til.

Skráðu þig á forgangslista fyrir ferðina hér!

Vinsamlega tilgreinið fjölda einstaklinga sem verið er að skrá.

2025-001.jpg

Initalia

bottom of page